Manchester United mun án efa sækja til sigurs í kvöld er liðið fær Young Boys í heimsókn í Meistaradeildinni.
United er í öðru sætinu í riðli H fyrir leikinn og gæti tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum ef Valencia tapar gegn Juventus.
Victor Lindelof er meiddur og getur ekki spilað með United í kvöld og tekur Phil Jones hans stöðu í miðverði.
Þeir Romelu Lukaku og Paul Pogba eru báðir á varamannabekknum.
Hér má sjá byrjunarliðin.
Manchester United: De Gea, Valencia, Smalling, Jones, Shaw, Matic, Fellaini, Fred, Lingard, Rashford, Martial
Young Boys: Von Ballmoos, Mbabu, Benito, Camara, Von Bergen, Sow, Aebischer, Sulejmani, Lauper, Nsame, Assale