Stjarnan 2-4 KR
0-1 Björgvin Stefánsson(1′)
1-1 Þorsteinn Már Ragnarsson(32′)
1-2 Pálmi Rafn Pálmason(47′)
1-3 Pálmi Rafn Pálmason(58′)
2-3 Hilmar Árni Halldórsson(65′)
2-4 Óskar Örn Hauksson(79′)
Það fór fram stórleikur í Bose-mótinu hér heima í kvöld er Stjarnan og KR áttust við í Kórnum.
Ballið byrjaði snemma leiks en Björgvin Stefánsson kom KR yfir eftir aðeins eina mínútu.
Þorsteinn Már Ragnarsson jafnaði svo fyrir Stjörnuna áður en Pálmi Rafn Pálmason bætti við tveimur fyrir þá svarthvítu og kom þeim í 3-1.
Hilmar Árni Halldórsson lagaði stöðuna í 3-2 fyrir þá bláu áður en Óskar Örn Hauksson gulltryggði svo KR 4-2 sigur.
Þetta var annar sigur KR í mótinu en liðið vann Víking 8-2 í fyrstu umferð. Stjarnan vann Víkinga einnig örugglega, 5-0.
KR mætir annað hvort HK eða Breiðabliki í úrslitum mótsins.