Manchester United á Englandi hefur sent inn kvörtun til lögreglunnar í Manchester eftir grannaslaginn við Manchester City um helgina.
United heimsótti City á Etihad völlinn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en heimamenn höfðu betur, 3-1.
Samkvæmt enskum miðlum var blysum kastað í stuðningsmenn United í leiknum af stuðningsmönnum heimaliðsins.
Sem betur fer meiddist enginn alvarlega en lögreglan rannsakar nú málið og mun fá hjálp frá báðum félögum.
Öryggisverðir vallarins áttu í erfiðleikum með að hafa stjórn á stöðunni um helgina en það eru oft mikil læti er þessi lið mætast.
City gæti átt yfir höfði sér refsingu vegna hegðun stuðningsmanna en enska knattspyrnusambandið mun einnig skoða málið.