Christian Pulisic, leikmaður Borussia Dortmund, er á óskalista stórliða en hann þykir mikið efni.
Pulisic er aðeins 19 ára gamall og hefur verið sterklega orðaður við Liverpool á þessu ári.
Samkvæmt fréttum í Þýskalandi er Pulisic til sölu ef hann neitar að skrifa undir nýjan samning.
Núverandi samningur Pulisic rennur út árið 2020 og ætlar félagið ekki að missa hann ódýrt á næsta ári eða frítt eftir tvö ár.
Pulisic vill sjálfur reyna fyrir sér á Englandi en faðir leikmannsins staðfesti það í sumar.