Virgil van Dijk, leikmaður Liverpool og hollenska landsliðsins, lék með Hollandi í gær í frábærum 3-0 sigri á Þýskalandi.
Leikurinn var í Þjóðadeildinni en Van Dijk komst á blað í nokkuð sannfærandi sigri heimamanna.
Varnarmaðurinn er hins vegar farinn heim til Liverpool og mun ekki spila gegn Belgíu í vináttuleik á þriðjudag.
Van Dijk er enn að glíma við meiðsli í rifbeinum en hann hefur verið tæpur síðan Liverpool vann Southampton 3-0 í síðasta mánuði.
Eftir samtal við læknateymi hollenska landsliðsins var komist að niðurstöðu að Van Dijk yrði sendur heim og spilar ekki leikinn.
Óvíst er hvort meiðslin muni hafa frekari áhrif á Van Dijk og hvort hann muni missa af næsta leik Liverpool.