Það kemur á óvart að Daniel Sturridge, leikmaður Liverpool, er í byrjunarliði liðsins gegn Paris Saint-Germain í kvöld.
Sturridge hefur verið í varahlutverki hjá Liverpool síðan Jurgen Klopp tók við en fær tækifæri í kvöld.
Roberto Firmino meiddist í leik gegn Tottenham um helgina en hann er þó heill og er á bekknum.
Sturridge er að byrja sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í 2379 daga sem er mögnuð staðreynd.
Sturridge byrjaði síðast leik í deild þeirra bestu í mars árið 2012 er hann var á mála hjá Chelsea sem spilaði við Napoli.