fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
433

Plús og mínus – ‘Hvað er ég að horfa á?’

Victor Pálsson
Mánudaginn 9. júlí 2018 21:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur Reykjavík vann sigur á Fylki í Pepsi-deild karla í kvöld en liðin áttust við í Egilshöll í 12. umferð.

Það var boðið upp á virkilega fjörugan fimm marka leik í kvöld og höfðu Víkingar betur 3-2.

Víkingar skoruðu öll sín mörk í fyrri hálfleik en Fylkismenn svöruðu með tveimur í þeim síðari.

Hér má sjá það góða og slæma úr leiknum

Plús:

Þvílíkur kraftur í Víkingum í byrjun leiks. Tvö mörk á sjö mínútum skilar sínu í knattspyrnuleik. Ástríðan til staðar hjá Loga Ólafs og félögum.

Andreas Larsen í marki Víkings sannaði það aftur að hann getur verið öflugur markvörður. Traustur í sínum aðgerðum í dag og bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum.

Leikurinn í heild sinni var bara frábær skemmtun. Færi eftir færi eftir færi. Menn fengu sitt í kvöld.

Fylkismenn komu kraftmeiri inn í síðari hálfleik og sönnuðu það að þeim var ekki sama. Voru mjög ógnandi eftir mark Jonathan Glenn í stöðunni 3-1.

Jonathan Glenn var frábær fyrir Fylkismenn í síðari hálfleik og gerði tvö mörk. Vonandi fyrir Árbæinga er hann kominn í gang.

Mínus:

Ekki veit ég hvað var að hjá Fylkismönnum í byrjun leiks. Eina sem maður hugsaði var ‘Hvað er ég að horfa á?’.

Helgi Valur Daníelsson fékk rautt spjald hjá Fylki eftir að hafa fengið tvö gul. Átti 3-4 mjög heimskuleg brot í þessum leik. Reynslan á að vera meiri, alls ekki skynsamleg brot.

Ég veit ekki hvort leikurinn hefði verið jafnt skemmtilegur á grasvelli en Egilshöllin bara gefur ekki mikið til baka upp þegar kemur að stemningu.

Vörn Víkinga var mjög ‘shaky’ á löngum köflum í síðari hálfleik. Staðan var lengi 3-1 og Víkingar af einhverjum ástæðum héldu að þeir þyrftu að henda öllum fram.

Það er svo vitlaust að fá á sig margar hættulegar skyndisóknir í stöðunni 3-0. Víkingar voru bara villtir til baka og það vantaði allt skipulag í seinni hálfleik eins góður og sá fyrri var.

Víkingar fengu vítaspyrnu í leiknum en áttu að fá aðra. Alex Freyr féll þá innan teigs eftir klaufalegt brot hjá Orra Sveini en Egill dómari dæmdi ekkert. Það var rangur dómur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

24 ára en hefur skorað 300 mörk á ferlinum

24 ára en hefur skorað 300 mörk á ferlinum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Breskir miðlar fjalla mikið um nýjasta Íslandsvininn – Benda á hvað íslenskir miðlar hafa að segja

Breskir miðlar fjalla mikið um nýjasta Íslandsvininn – Benda á hvað íslenskir miðlar hafa að segja