Íslenska landsliðið kom heim til landsins í gær eftir 18 daga ferðalag í Rússlandi, liðið hefur lokið keppni á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Liðið endaði með eitt stig úr þremur leikjum en það var samdóma álit um að liðið lagði allt í sölurnar.
Stundum er fótboltinn svona, þú færð ekki alltaf það sem þú leggur í leikina.
Alfreð Finnbogason framherji Íslands skrifaði sig í sögubækur íslenska fótboltans á mótinu. Hann skoraði fyrsta mark Íslands á HM.
Alfreð birti gæsahúðar myndband á Instagram sem sjá má hér að neðan.