Það virðist vera að léttast yfir landsliðshópi Argentínu eftir erfitt gengi á HM í Rússlandi.
Argentína gerði jafntefli við Ísland í fyrsta leik, sem voru mikil vonbrigði fyrir þjóðina þar í landi.
Liðið fékk svo mikinn skell gegn Króatíu í öðrum leik og er upp við vegg.
Argentína þarf sigur á morgun gegn Nígeríu og treysta á að Ísland vinni ekki eða vinni hið minnsta aðeins með einu marki til að reyna að vinna um markamuninn.
Lionel Messi hélt uppá afmæli sitt í gær og fékk góða köku , samkvæmt fréttum þar í landi er andrúmsloftið aðeins að léttast yfir hjá Argentínu.