Ante Rebic er búinn að koma Króatíu yfir gegn Argentínu en liðin eigast við á HM í Rússlandi.
Rebic skoraði fyrir Króatíu í síðari hálfleik en staðan er 1-0 fyrir liðinu þegar um hálftími er eftir.
Það eru ágætis fréttir fyrir Ísland en okkar menn mæta Nígeríu á morgun og svo Króatíu í lokaleiknum.
Mark Rebic skrifast algjörlega á Willy Caballero í marki Argentínu en hann gerði hræðileg mistök.
Caballero vippaði boltanum beint á Rebic sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði fallegt mark.
Markið má sjá hér.
GOOOOOOAAAAALLLLL!⚽ 53’m
REBIC SCORESSSSS ⚽⚽⚽⚽ FOR #CROATIA
WHAT A BIG BIG BLUR BY #Argentina ‘s Goalkeeper Caballero , Huge mistake.
And Sebic scores with an Acrobatic ??????????#ARG 0-1 #CRO #MeriDoosriCountry #ArgentinaCroazia #ARGCRO #WorldCup #KS7 pic.twitter.com/bcBmfICEKe
— Kishan Singh (@imKishanSingh7) 21 June 2018