Willy Caballero átti ekki góðan leik fyrir Argentínu í kvöld er liðið tapaði 3-0 fyrir Króatíu.
Caballero gaf Króötum fyrsta mark leiksins en hann vippaði þá boltanum á Ante Rebic í eigin vítateig sem þakkaði fyrir sig og skoraði.
Caballero átti upphaflega ekki að vera aðalmarkvörður Argentínu en eftir meiðsli Sergio Romero þá fær hann tækifærið.
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, ræddi frammistöðu Caballero í kvöld og var alls ekki hrifinn.
,,Ég eða Caballero í markinu, það hefði endað alveg eins. Ég hefði varið jafn mörg skot og Caballero,“ sagði Mourinho.
Mourinho hefur aðeins reynt fyrir sér í marki en hann stóð á milli stanganna í góðgerðarleik í fyrra.