Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
Fjölmiðlar í Argentínu eru byrjaðir að liggja á bakinu á Jorge Sampaoli þjálfara liðsins. Þjóðin á erfitt með að sætta sig við jafntefli gegn litla, Íslandi.
Næst er það leikur gegn Króatíu, tap þar og Argentína gæti verið úr leik. Eitthvað sem þjóðin ætti erfitt með að taka.
Sampaoli er því strax undir mikilli pressu. ,,Nú eru 72 klukkustundir til stefnu, til að undirbúa næsta leik Argentínu á HM. Við viljum breytinga eða þig burt,“ sagði í umfjöllun fjölmiðla þar í landi.
,,Ég ætlaði alltaf í breytingar sama hvernig leikurinn við Ísland hefði farið, ég veit sem þjálfari að andstæðingar okkar eru ekki allir eins, ég planaði þetta í æfingaferð okkar í Barcelona,“ sagði Sampaoli um málið.