Stórar líkur eru á því að Anderson Talisca sé á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool í sumar.
Þetta staðfesti Senol Gunes, stjóri Besiktas, í gær en Talisca lék ekki með liðinu í síðasta deildarleiknum gegn Sivasspor.
,,Talisca er nú þegar farinn í vetarfrí. Það er leitt að hann verði ekki með okkur lengur,“ sagði Gunes.
,,Ég vildi óska þess að hann yrði hér lengur, hans vegna og okkar vegna. Það var búið að semja.“
Gusen bætti svo við að Talisca gæti spilað fyrir erkifjendur Cenk Tosun, leikmanns Everton, sem er einmitt Liverpool.