Pep Guardiola hefur krotað undir nýjan samning við Englandsmeistara Manchester City.
Þetta var staðfest í dag en Guardiola skrifaði undir samning til ársins 2021 og er því samningsbundinn næstu þrjú árin.
Samningur Guardiola átti að renna út á næsta ári en eftir magnað tímabil mun hann nú halda áfram.
City vann ensku deildina örugglega og bætti mörk met í leiðinni. Þar á meðal stigamet í úrvalsdeildinni.
Guardiola er því ekki á förum frá City og mun freista þess að bæta árangurinn á næstu leiktíð.