Carlo Ancelotti hefur verið boðið að gerast nýr landsliðsþjálfari Ítalíu.
Hann hefur verið án starfs eftir að FC Bayern rak hann úr starfi í september.
Ancelotti var rekinn úr starfi eftir að hafa tapað 3-0 gegn PSG í Meistaradeildinni.
Hann hefur fundað með knattspyrnusambandi Ítalíu um að taka við.
Ancelotti hefur átti magnaðan feril en hann hefur meðal annars stýrt AC Milan, Chelsea, Real Madrid og PSG.