Tveir leikir fóru fram í Mjólkurbikarnum í kvöld og var þeim að ljúka núna rétt í þessu.
Selfoss tók á móti Gróttu í hörkuleik þar sem að heimamenn komust yfir snemma leiks eftir sjálfsmark.
Óliver Dagur Thorlacius jafnaði metin fyrir Gróttu í fyrri hálfleik og staðan því 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.
Kristófer Páll Viðarsson kom Selfyssingum svo yfir í upphafi framlenginarinnar áður en Ásgrímur Gunnarsson jafnaði metin fyrir Gróttu og því var gripið til vítakeppni þar sem að heimamenn höfðu betur, 4-2.
Þá vann Víðir 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Þrótti Vogum þar sem að Ari Steinn Guðmundsson og Patrik Snær Atlason skoruðu mörk gestanna.
Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Selfoss 2 – 2 Grótta
6-4 eftir vítakeppni
1-0 Sjálfsmark (13′)
1-1 Óliver Dagur Thorlacius (24′)
2-1 Kristófer Páll Viðarsson (93′)
2-2 Ásgrímur Gunnarsson (104′)
Rautt spjald: Magnús Ingi Einarsson (41′)
Vítakeppni: 4 – 2
Léttir 0 – 1 Hamar
0-1 Guðmundur Karl Þorkelsson (90′)
Þróttur V. 1 – 2 Víðir
0-1 Patrik Snær Atlason (14′)
0-2 Ari Steinn Guðmundsson (65′)
1-2 Jordan Chase Tyler (75′)