Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og var þeim að ljúka núna rétt í þessu.
Burnley tók á móti Chelsea í hörkuleik þar sem að gestirnir fóru með sigur af hólmi, 2-1.
Það var Kevin Long sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmar fyrir heimamenn á 20. mínútu og staðan því 1-0 í leikhléi.
Ashley Barnes jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn á 64. mínútu eftir að skot Jóhanns Bergs Guðmundssonar fór af honum og í netið og staðan því orðin 1-1.
Victor Moses skoraði svo sigurmark leiksins á 64. mínútu eftir vandræðagang í vörn heimamanna.
Leikmenn Burnley reyndu að jafna leikinn en gestirnir vörðust vel og lokatölur því 2-1 fyrir Chelsea í hörkuleik.
Burnley er áfram í sjöunda sæti deildarinnar með 52 stig, tveimur stigum á eftir Arsenal en Chelsea er áfram í fimmta sætinu með 63 stig, fimm stigum á eftir Tottenham sem er í fjórða sætinu.
Leicester tók svo á móti Southampton þar sem að hvorugu liðinu tókst að skora og niðurstaðan því markalaust jafntefli.
Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.
Burnley 1 – 2 Chelsea
0-1 Kevin Long (sjálfsmark 20′)
1-1 Ashley Barnes (64′)
1-2 Victor Moses (69′)
Leicester 0 – 0 Southampton