Hörður Magnússon og sérfræðingar hans í Pepsimörkunum eru að verða klárir í slaginn en fyrsti þáttur er í næstu viku.
Líkt og síðustu ár gerir Hörður auglýsingu fyrir þættina.
Í ár fer hann gjörsamlega á kostum og fer algjörlega yfir um þegar hann lýsir deildinni.
,,Hvern ætlar Guðmann að tækla fyrst,“ sagði Hörður. ,,Borgin hans Dags, hann vill setja gervigras á allt. Hann vill setja gervigras á göturnar, hann sefur í gervigrasi,“ sagði Hörður Um Dag B. Eggertsson.
Íslenskt knattspyrnuáhugafólk var ekki lengi að átta sig á því að hugmyndin að auglýsingunni hefur verið gerð áður. Þá í Bretlandi, That Mitchell And Webb Look var þáttur á BBC.
Þar nákvæmlega eins auglýsing gerð sem vakti mikla athygli þá. Sjá má auglýsinguna frá Bretlandi og auglýsingu Pepsimarkanna hér að neðan.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=MusyO7J2inM&w=560&h=315]