Breiðablik setur stefnuna á að vera á meðal þriggja efstu liða í Pepsi deild karla í sumar.
Frá þessu segir, Jonathan Hendrickx bakvörður liðsins sem hefur gert nýjan samning við félagið.
Blikar fengu Hendrickx í nóvember og hafa gert nýjan samning við hann án þess að deildina sé byrjuð.
,,Ég hef mikla trú á liðinu, ég held að við getum gert góða hluti. Okkar markmið er að vera á meðal þriggja efstu lða í sumar, ég held að við getum það með þetta lið,“ sagði Hendrickx.
,,Ég elska aðstæður hérna, ef ég ber þær saman við FH þá er þetta svipað. Þjálfarinn og starfsliðið er að gera frábært starf. Við erum með ungan hóp, mikið fjör og það er alltaf gaman á æfingum.“
Ágúst Gylfason tók við liði Breiðabliks í sumar en annað árið í röð eru Blikar ekki í Evrópusæti.