Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
———–’
Tottenham hefur áhuga á Arthur Masuaku vinstri bakverði West Ham til að fylla skarð Danny Rose. (Sun)
Jurgen Klopp mun ekki selja Mohamed Salah í sumar. (Mail)
Gareth Bale býst við að vera áfram hjá Real Madrid á næstu leiktíð. (Sun)
Jonny Evans vonast til að ganga í raðir Manchester City í sumar. (Mirror)
Pep Guardiola mun reyna að kaupa varnarsinnaðan miðjumann og kantmann í sumar. (Times)
Chelsea íhugar að ráða Maruizio Sarri stjóra Napoli í sumar. (Mirror)
Barcelona mun ekki drýfa sig í að ræða við Samuel Umtiti um nýjan samning. (Mundo)
Zlatan Ibrahimovic hefur boðið leikmönnum Manchester United til Los Angeles í partý. (Sun)