Paul Parker fyrrum miðjumaður Manchester United og enska landsliðsins er lítt hrifinn af hegðun Paul Pogba.
Parker telur að Pogba eigi að einbeita sér að því að standa sig innan vallar frekar en að hugsa endalaust um nýjar hárgreiðslur.
Sú gagnrýni kemur reglulega upp enda Pogba duglegur að breyta um hárgreiðslur.
,,Munurinn á Pogba og De Bruyne gæti sést á laugardaginn,“ sagði Parker þegar Manchester United heimsækir Manchester City, City verður enskur meistari með sigri.
,,Við erum að tala um tvo öfluga leikmenn, það eru góðir leikmenn en til að vear í heimsklassa þarftu stöðuleika og það hefur De Bruyne.“
,,Getur Pogba orðið sá leikmaður sem hann vill verða? Hann þarf að forgangsraða hlutunum, hann á að hugsa um fótbolta frekar en hárið.“
,,Það er í lagi að vera alltaf að skipta um greiðslur og þannig hluti ef þú lætur verkint ala innan vallar allar vikur.“