fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Bölvun, álög eða óheppni?

Knattspyrnumennirnir og knattspyrnuliðin sem voru undir álögum – eða þannig

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 4. febrúar 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjátrú hefur fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar og þeir sem hafa stundað íþróttir kannast eflaust við að fylgja ákveðnum hefðum áður en farið er út á völl. Þetta gera íþróttamenn í þeirri von að allt fari ekki fjandans til þegar í leik er komið. FourFourTwo-tímaritið tók á dögunum saman skemmtilegan fróðleik um ýmsa knattspyrnumenn og knattspyrnulið sem einhverjir kynnu að halda að séu eða hafi verið undir einhvers konar álögum. Hafa ber í huga að úttektin er til gamans gerð og ekki byggð á traustum grunni vísindalegra staðreynda.


Mynd: EPA

Maeda skoraði og liðin féllu

Ryoichi Maeda er mikill markahrókur. Þessi 35 ára framherji spilaði með Jubilo Iwata í Japan á árunum 2000 til 2014 en á árunum 2007 til 2012 gerðist nokkuð sem vakti athygli margra. Á hverju tímabili féll það lið um deild sem Maeda skoraði sitt fyrsta mark gegn. Þar á meðal var Gamba Osaka sem hafði endað í einu af efstu þremur sætunum síðustu þrjár leiktíðir á undan. Bölvuninni virðist hafa verið aflétt árið 2013 þegar Urawa Red Diamonds endaði í 6. sæti deildarinnar. Sama tímabil féll hins vegar Jubilo Iwata, lið Maeda.


Algjört miðlungslið

Coventry City nýtur þess vafasama heiðurs að hafa ekki komist í hóp sex efstu liða 46 tímabil í röð í ensku deildakeppninni. Með öðrum orðum hefur Coventry nær alltaf, í tæpa hálfa öld, endað í 7. sæti eða neðar. Á þessum 46 árum hefur liðið þrisvar endað fyrir ofan 10. sætið; 7. sæti árið 1978, 7. sæti árið 1989 og 8. sæti árið 2006. Liðið leikur nú í þriðju efstu deild Englands eftir að hafa spilað í úrvalsdeildinni fyrstu árin eftir stofnun deildarinnar. Nær engar líkur eru á að Coventry nái að snúa þessu gengi til betri vegar á næstunni. Liðið situr nefnilega í 24. sæti af 24 liðum í League One.


Mynd: EPA

„Verða ekki Evrópumeistarar í 100 ár“

Béla Guttmann þótti býsna snjall knattspyrnustjóri á sínum tíma enda nældi hann í fimm titla á þeim þremur árum sem hann stýrði Benfica í Portúgal. Eftir að hann gerði liðið að Evrópumeisturum árið 1962, eftir glæsilegan sigur á Real Madrid, bað hann um launahækkun. Því miður varð Guttmann ekki að ósk sinni og brást hann ókvæða við í kjölfarið. „Benfica verður ekki Evrópumeistari næstu hundrað árin,“ sagði hann. Og síðan þá hefur Benfica ekki unnið neinn stóran titil í Evrópukeppni þótt liðið hafi átta sinnum komist í úrslit, nú síðast í Evrópudeildinni árin 2013 og 2014 þar sem Benfica tapaði í bæði skiptin.


Mynd: Mynd Reuters

Hinn ótrúlegi Andrés

Andrés Iniesta er einn besti leikmaður sinnar kynslóðar. Hann hefur skorað nokkur mikilvæg mörk á ferli sínum, til dæmis sigurmarkið í úrslitaleik HM 2010 þar sem Spánverjar lögðu Hollendinga. Iniesta hefur skorað 54 mörk fyrir Barcelona og 13 fyrir spænska landsliðið, eða 67 í það heila. Athygli vekur að Iniesta hefur aldrei skorað í tapleik, hvorki með Barcelona né landsliðinu. Síðast þegar hann skoraði í tapleik var árið 2003 með B-liði Barcelona. Fleiri leikmenn státa af viðlíka árangri og Iniesta. Til dæmis James Milner sem hefur aldrei tapað úrvalsdeildarleik þegar hann hefur komist á blað. Milner hefur skorað 46 mörk í deildinni með liðum eins og Liverpool, Newcastle, Aston Villa.


Mynd: Reuters

Bale-bölvunin

Allir sem fylgjast með fótbolta vita að Gareth Bale er einn besti leikmaður heimsfótboltans þegar hann er í stuði. Bale, sem gekk til liðs við Tottenham frá Southampton árið 2007, byrjaði ekki beint vel hjá Tottenham. Hann var enda ungur og óreyndur á þeim tíma. En það setti hroll að stuðningsmönnum Spurs þegar þeir ráku augun í leikskýrsluna og sáu að Bale var í hópnum. Ástæðan var einföld: Í fyrstu 24 leikjum Bale hjá Tottenham var hann aldrei í sigurliði, ekki einu sinni. Slúðrað hefur verið um að Harry Redknapp, þáverandi stjóri Tottenham, hafi viljað losna við Bale meðal annars af þessari ástæðu en hann hefur neitað því og sagst hafa haft trú á sínum manni. Það er líka eins gott. Bale var kjörinn leikmaður ársins á Englandi árið 2011 og 2013 og varð dýrasti knattspyrnumaður heims árið 2013 þegar Real Madrid festi kaup á honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall

Væri enn bestur í deildinni 80 ára gamall
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Í gær

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær