Ásdís Hjálmsdóttir náði sér ekki á strik í spjótkastkeppni Ólympíuleikana í Ríó í nótt og er úr leik. Ásdís fékk þrjú köst, gerði tvívegis ógilt eina kast hennar var upp á 54,92 metra. Hún hafnaði í 30. sæti af 31 keppendum.
Kasta þurfti yfir 63 metra til að tryggja sig inn í úrslit en 12 kastarar keppa til úrslita næstu nótt. Pólski kastarinn Maria Andrejczyk átti lengsta kastið í nótt en hún kastaði 67,11 metra.
Íslandsmet Ásdísar er 62,77 metrar en það setti hún á Ólympíuleikunum í London 2012 og fór þá alla leið í úrslit.