Ítalir héldu að fyrstir þjóða íþróttakeppni fyrir fólk með Downs heilkenni í anda Ólympíuleikanna.
Um þúsund keppendur frá 36 löndum hafa skráð sig til leiks. Keppt hefur verið í öllu frá fimleikum, til innanhúsbolta, júdó, sundi, tennis og borðtennis.
Leikarnir voru nefndir T21, en það er heitið á algengasta downs heilkenninu.
„Það hefur gífurleg vinna verið lögð í leikana, og hefur það tekið yfir tíu ár að koma þessu fólki út til að hreyfa sig og upplifa íþróttir öðruvísi en sem afþreyingu,“ segir Marc Truffaut, yfirmaður íþróttasambands fatlaðra í Frakklandi.
Þá bindur Marc vonir við að París takið að sér að halda næstu leika árið 2024. „Leikurinn er kraftur þrauma þinna,“ segist hann vilja hafa sem slagorð keppninnar.