Einn af merkustu gripum Sædýrasafnsins var stór og mikil kyrkislanga af tegundinni Boa Constrictor sem fékk nafnið Goldie. Ragnhildur Jónsdóttir segir að faðir sinn, Jón Kr. Gunnarsson safnstjóri, hafi sótt Goldie til New York en þar hafi hún verið í einkaeigu. Jón flutti slönguna í ferðatösku í handfarangri til baka og var með uppáskrifað skjal um innihaldið. „Tollararnir báðu um að fá að kíkja í töskuna. Pabbi, sem var svolítill prakkari, sagði þeim að þetta væri kyrkislanga en þeim væri velkomið að kíkja. Því þorðu þeir náttúrlega ekki.“ Goldie dvaldi á heimili fjölskyldunnar í Skúlaskeiði á meðan verið var að smíða búr. Ragnhildur segist hafa strítt saumaklúbbsvinkonum móður sinnar með slöngunni. „Það var eins gott að engin var hjartveik þarna.“