Þann 4. desember árið 1918 blossaði upp eldur á heimili Guðmundar Björnssonar þingmanns og starfandi landlæknis. Enginn var heima en slökkvilið náði að slökkva eldinn áður en hann gereyðilagði húsið. Allmiklar skemmdir urðu þó. Talið var að eldsupptökin hafi verið í fataskáp á efstu hæð og var þetta í fimmta eða sjötta sinn sem eldur hafði kviknað í íbúðinni af undarlegum orsökum. Tveimur dögum síðar kviknaði aftur í hjá Guðmundi en þá í útihúsi, austan við íbúðarhúsið. Voru menn þá fullvissir að um íkveikju væri að ræða. Vörður var settur við húsið og brennuvargsins leitað.