fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

„Ég vil helst fara heim“

Fórnarlamb Axels var á morgunskokki – Fannst níu tímum síðar

Kolbeinn Þorsteinsson
Þriðjudaginn 30. maí 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil helst fara heim til foreldra minna, því það er ferming framundan hjá okkur á Grænlandi. Ég vil helst fara heim,“ sagði þrítugur Grænlendingur, Axel Otto Berthel Paaviannguaq Christiansen, rétt áður en dómur var kveðinn upp yfir honum í undirrétti í Kaupmannahöfn, 22. maí 2017.
Axel Otto var ákærður fyrir sérlega hrottalega nauðgun og morðtilraun sem átti sér stað árla morguns 16. ágúst 2016. Fórnarlambið var 39 ára kona sem í mesta grandaleysi hafði ákveðið að hreinsa hugann í morgunsárið með því að skokka á stíg við Sporsløjfen á Austurbrú í Kaupmannahöfn.

Engin heimför í bráð

Orðin lét Axel Otto falla rétt áður en hluti landsréttar dró sig í hlé til að ákvarða lyktir í máli hans. En það átti ekki fyrir Axel Otto að liggja að komast heim í föðurhús og áðurnefnda fermingu á Grænlandi því meðlilmir landsréttar voru á einu máli; Axel Otto skyldi sæta ótímabundnu varðhaldi.

Fátt um viðbrögð

Þegar dómurinn var kveðinn upp sýndi sá dæmdi engin viðbrögð, en leit á túlk sinn og muldraði „hmm“ nokkrum sinnum.
Úrskurðinn byggði rétturinn á þeirri staðreynd að Axel Otto hefði látið til skarar skríða snemma morguns, klukkan sex nánar til tekið, þegar, eðli málsins samkvæmt, fáir voru á ferli og skilið fórnarlamb sitt eftir illa farið, hjálparlaust og í lífshættu.

Ógeðfelldar aðfarir

Axel Otto dró konuna inn í kjarr, nauðgaði henni, gekk í skrokk á henni með höggum og spörkum og reyndi síðan að kyrkja hana með bandi eða hennar eigin fatnaði.
Að þessu loknu huldi hann konuna í kjarrinu en það varð henni til happs að mörgum tímum síðar fór fjölskylda hennar að undrast um hana. Um níu klukkustundum síðar fundu ættingjar konunnar hana, hjálparvana og við dauðans dyr vegna áverka og ofkælingar.

Óvíst með áfrýjun

Einnig tók rétturinn tillit til mats læknaráðsins sem taldi Axel Otto glíma við alvarlega persónuleikaröskun og því afar líklegt að hann myndi fremja fleiri glæpi sem stofnað gætu lífi og limum fólks í verulega hættu.
Axel Otto var að auki dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 153.040 danskar krónur, sem samsvarar 2,3 milljónum íslenskra króna.
Í samráði við verjanda sinn ákvað Axel Otto að taka ekki ákvörðun um áfrýjun að svo stöddu.

Færslur á Facebook

Rúmum hálftíma eftir ódæðið setti Axel Otto færslur á Facebook-síðu sína. Þar skrifaði hann, á grænlensku, klukkan 7.42: „Ég fer brátt í búð. Ég vil ekki verða edrú. Ég vil alltaf vera hífaður. Hver vill láta sér leiðast? Ég segi bara: Hver vill ekki vera í glasi og stytta þannig dagana?“
Sjö mínútum síðar skrifar hann: „Ég elska hana of mikið og vil vera með henni. Hún veit að ég elska hana og hefur vitað lengi. Ég vil fara með henni til Sisimut (heimabær hans á Grænlandi) […] saman getum við komist í gegnum gott og slæmt í lífinu. Það er allt hluti af lífinu.“
Fyrir rétti vildi Axel Otto þó ekki upplýsa til hvaða konu hann skrifaði ástarjátninguna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða