fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Ætlar að gerast alvöru Molbúi

Guðlaugur Arason sýnir álfabækur sína á Dalvík – Flytur til Danmerkur – Kominn með danskan umboðsmann

Kolbrún Bergþórsdóttir
Mánudaginn 7. ágúst 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Arason hefur undanfarin ár unnið að gerð svonefndra álfabóka. Hann hefur sýnt þær víða um land og á þessu ári sýndi hann á Ísafirði og Akranesi. Nú er komið að síðustu sýningunni, sem er í menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Sýningin verður opnuð 3. ágúst og stendur út ágústmánuð. Eftir það heldur Guðlaugur úr landi. „Ég hef fengið mig fullsaddan af þessari íhaldseyju og ætla að flýja til Danmerkur,“ segir hann. „Þar sem ég er ekki háður neinum, skulda engum neitt og get ráðið mér sjálfur þá ætla ég að gera þetta núna og anda að mér annars konar lofti. Ég ætla að setjast að í Mols-héraði úti á Jótlandi og gerast þannig alvöru Molbúi.“

Guðlaugur er búinn að ráða sér umboðsmann í Danmörku og ætlar að fara á markað þar og gera danskar álfabækur. Hann bjó í áratugi í Danmörku og þekkir því danskt samfélag vel. „Það er ekki eins sárt að tuða í Danmörku og á Íslandi. Ástandið á Íslandi tek ég svo inn á mig að ég hef ekki taugar í að búa hérna. Það er skömminni skárra þegar maður er kominn til Danmerkur, þá er maður ekki í sínu eigin landi og getur leyft sér að tuða því þá er komin ákveðin fjarlægð frá því sem maður er óánægður með.

Mér finnst misréttið og óréttlætið sem er alls staðar í kringum okkur skrýtið og það virðist ekki minnka heldur aukast. Ég er fæddur kommúnisti, stútfullur af réttlætiskennd og get ekkert að því gert. Fyrir mér er sósíaldemókrati sama og framsóknarmaður.“

„Það fylgir því mikil gleði að sýna þær.“
Hefur gert um 360 álfamyndir „Það fylgir því mikil gleði að sýna þær.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Býr í húsbíl

Guðlaugur verður á Dalvík meðan á sýningu hans þar stendur og býr í húsbíl, eins og hann gerði á Ísafirði og á Akranesi. „Á yndislegu sumri þegar hlýtt er og hitabylgjur ganga yfir landið eins og nú um stundir, þá er gott að búa í húsbíl. Ég kann vel við svona sígaunalíf. Það er erfitt yfir veturinn í mestu stórhríðunum að búa þannig en það er allt í lagi yfir sumarið, ekki síst þegar maður hefur tilgang í því að fara á milli staða.“

Guðlaugur hefur alls gert um 360 álfamyndir sem allar eru númeraðar. Hann er spurður um viðbrögð við þeim. „Fólk verður glatt við að sjá þær, slær sér jafnvel á lær og brosir. Þær höfða líka til krakka. Það fylgir því mikil gleði að sýna þær.“

Reynir alltaf að gera betur

Hvernig fékkstu þá hugmynd að búa til álfabækur?

„Frá því ég man eftir mér hefur legið fyrir mér að búa til bækur. Ég hef verið að skera út bækur, mála bækur, binda inn bækur og skrifa bækur. Í Suður-Evrópu er aldagömul hefð fyrir gerð lítilla bóka og það er hægt að læra að búa þær til. Ég bjó í Sviss í nokkur ár og þar kynntist ég manni sem gerði litlar ævintýramyndir í þrívídd. Ég ræddum saman um gerð lítilla mynda. Ég vildi athuga hvort ég gæti ekki gert litlar bækur eftir bókunum í bókasafni mínu. Ég tók nokkra mánuði í að búa til litlar útgáfur af Íslendingasögunum. Það tókst og síðan átti þetta ekki að vera meira. En svo var ég orðinn svo ánægður með sjálfan mig að ég fór að velta því fyrir mér hvort ég gæti gert betur. Ég er enn að reyna að gera betur.“

„Það eru heilu vikurnar sem ég er bara að búa til bækur.“
Litlar bækur „Það eru heilu vikurnar sem ég er bara að búa til bækur.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hann segist ekki geta svarað því hversu lengi hann sé með hverja mynd. „Ég er alltaf með margar myndir í takinu. Það eru heilu vikurnar sem ég er bara að búa til bækur og svo er ég að smíða ramma og kassa. Svo einn góðan veðurdag, eftir nokkrar vikur, er efniviðurinn orðinn þannig að ég get farið að mála og líma bækurnar og raða þeim upp. Þá eru allt í einu orðnar til nokkrar myndir.“

Ráð frá vinkonu

Guðlaugur er rithöfundur og meðal skáldsagna hans má nefna Eldhúsmellur, Pelastikk og Sóla, Sóla. Langt er síðan skáldsaga eftir hann kom út. „Ég er alltaf að skrifa, ég gef bara aldrei neitt út. Ég er aldrei nógu ánægður með það sem ég geri,“ segir hann. „Dönsk vinkona mín sagði: Gulli, þú átt ekkert að vera að skrifa, það er fjöldi fólks sem er að skrifa, bæði góðar bækur og vondar bækur, slepptu því. Gerðu það sem enginn annar getur og það er að búa til litlar álfabækur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu