Ástarsögur íslenskra kvenna sló í gegn – Framhaldsbók í smíðum
Höfundar hinnar vinsælu bókar Ástarsögur íslenskra kvenna leita nú að sönnum ástarsögum íslenskra karla (og þeirra sem upplifa sig innan þess kyngervis) til að fylla sjálfstæða framhaldsbók sem á að koma út í lok árs.
Fyrri bókin sem bar undirtitilinn „frásagnir úr raunveruleikanum“ innihélt tæplega 50 ástarsögur sem var safnað saman af Maríu Lilju Þrastardóttur og Rósu Björk Bergþórsdóttur. Bókin sem var gefin út af Bjarti var ein vinsælasta bók sumarsins og sat til að mynda á toppi vinsældalista Eymundsson um tíma. Nú hefur svo verið tekin ákvörðun um útgáfu sjálfstæðrar framhaldsbókar með ástarsögum íslenskra karla sem stefnt er á að komi út í árslok.
„Auðvitað verða karlar líka ástfangnir, auðvitað finna þeir líka fyrir söknuði og ástarsorg og með bókinni langar okkur, aftur, að kveða niður hina hefðbundnu ímynd samfélagsins um kyn og ást,“ segja höfundarnir um verkefnið.
Tekið er á móti texta á hvaða formi sem er, ljóðum, sögum, dagbókarfærslum eða öðru. Þá munu höfundarnir hitta karla og rita niður sögur þeirra, ef þeir treysta þeir sér ekki til að skrifa þær sjálfir. Allar sögurnar sem verða í bókinni verða nafnlausar en settar fram í samvinnu við höfunda og eigendur þeirra. Hægt er að senda ástarsögur á netfangið astarsogur@gmail.com.