fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Hilma valin besta glæpasaga síðasta árs

Óskar Guðmundsson hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir Hilmu

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 14. júní 2016 15:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óskar Guðmundsson hlaut í gær íslensku glæpasagnaverðlaunin, Blóðdropann, fyrir bókina Hilma sem kom út í fyrra hjá Draumsýn. Bókin verður því framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Tíu bækur áttu möguleika á að hljóta verðlaunin í ár, meðal annars bækur eftir Arnald Indriðason, Yrsu Sigurðardóttur og Stefán Mána, sem hefur hlotið verðlaunin tvö síðustu ár.

Í rökstuðningi dómnefndarinnar sagði meðal annars um verðlaunabókina: „ Spennan hefst á fyrstu blaðsíðu sögunnar og lesandinn fylgist með óhugnanlegum atburði úr fortíð. Atburði sem teygir sig inn í nútíð og brátt fjölgar morðum og ofbeldi eykst. Lögreglukonan Hilma þarf ekki aðeins að kljást við að finna morðingja heldur þarf hún einnig að glíma við forhertan glæpamann úr undirheimum Reykjavíkur sem vill koma fram við hana hefndum. En Hilma er hörku nagli sem lætur engan vaða yfir sig.“

Í dómnefnd Blóðdropans í ár sátu Úlfar Snær Arnarson, Kristján Jóhann Jónsson og Guðrún Ögmundsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka

Sigríður Hrund dregur forsetaframboð sitt til baka