Hefur hlotið umhverfisstimpilinn CarbonNeutral
Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefur hlotið umhverfisstimpilinn CarbonNeutral® sem Natural Capital Partners veita fyrirtækjum og stofnunum. Það er viðurkenning á því að allt koltvíoxíð sem losað er við hátíðarhaldið auk alls úrgangs verður kolefnisjafnað með fjárfestingu í regnskógarverndunarstofnun á eyjunni Madagaskar.
Aðstandendur segjast einnig ætla að leita annarra leiða til að gera hátíðina umhverfisvænni: með endurvinnslu, notkun á ruslafötum sem brotna niður í náttúrunni og notkun á hybrid-bílum.
Aðstandendur Secret Solstice leggja einnig áherslu á að einungis endurnýjanlegir orkugjafar séu notaðir til að knýja hátíðina en það þykir harla óvenjulegt í þessum bransa. ,,Öll orka sem notuð hefur verið til þess knýja Secret Solstice síðustu tvö ár hefur verið jarðhitarafmagn sem framleitt var á staðnum,’’ er haft eftir Giles Bristow, framleiðslustjóra Secret Solstice 2016, í tilkynningu frá hátíðinni.
,,Þetta voru fyrstu útiviðburðir sem ég hef framleitt þar sem ekki einn dropi af díselolíu var notaður til þess að keyra hvorki hljóðkerfi, sviðslýsingu né neina sviðsframleiðslu,’’ segir hann.