fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Bókarkápa sem vekur óhug

Sigrún Gylfadóttir hannaði útlit Svartagaldurs – Vill vekja upp ónotatilfinningu með því að nota Biblíuna sem fyrirmynd

Kristján Guðjónsson
Laugardaginn 12. nóvember 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirtektarverðasta bókarkápa jólabókaflóðsins hingað til er sú sem hylur nýjustu spennusögu Stefáns Mána, Svartigaldur, en það er fjórða bókin um lögreglumanninn tröllvaxna Hörð Grímsson sem nú þarf að rannsaka dulmagnað morð á alþingismanni.

Kápuhönnunin minnir meira á hefðbundna Biblíu en spennusögu. Þetta er naumhyggjuleg, svört, leðurbundin bók með gylltum stöfum og krossi framan á og bandi til að merkja hvert maður er kominn í lestrinum. Reyndar mun mörgum finnast hún ólíkt óhugnanlegri en „hin helga bók“ enda eru hliðarnar rauðlitaðar og gyllti krossinn öfugur. Á lúmskan hátt er snúið upp á táknmyndir hins algóða til að kalla fram algjöra andstæðu þess.

Hönnuður kápunnar er Sigrún Gylfadóttir, hönnunarstjóri og annar eigandi Kontor Reykjavík, nýrrar auglýsingastofu sem var stofnuð fyrir tveimur árum af Sigrúnu og manni hennar Alex Jónssyni, en áður voru þau hluthafar á einni af stærri auglýsingastofu landsins. Kontor Reykjavík hefur strax fest sig í sessi og hlaut tvo lúðra á íslensku auglýsingaverðlaununum í ár, meðal annars fyrir prentauglýsingu fyrir lyfjafyrirtækið Alvogen.

Nú hefur bókaútgáfan Sögur fengið Kontor til að sjá um kápuhönnun fyrir sig og af bókum jólaflóðsins hefur stofan meðal annars hannað endurminningabók Bjartmars Guðlaugssonar Þannig týnist tíminn, Ljósin á Dettifossi eftir Davíð Loga Sigurðsson, Vögguvísur Jóns Ólafssonar, Fjötra Söndru B. Clausen, Fánýtan fróðleik, og svo auðvitað Svartagaldur eftir Stefán Mána.

Sigrún Gylfadóttir og félagar á kontórnum, en þau sjá um hönnun Svartagaldurs eftir Stefán Mána og fleiri bóka frá Sögum útgáfu.
Hönnuðir Sigrún Gylfadóttir og félagar á kontórnum, en þau sjá um hönnun Svartagaldurs eftir Stefán Mána og fleiri bóka frá Sögum útgáfu.

Mynd:

Óhugur og ónotatilfinning

„Ég hef í raun ekki gert mikið af bókarkápum í gegnum tíðina, en aðallega verið í herferðum og hugmyndavinnu. Kannski varð þessi kápa svona einmitt vegna þess að mér finnst svo skemmtilegt að vinna með konsept og hugmynd,“ segir Sigrún.

„Þegar ég byrjaði að lesa bókina fylltist ég óhug og mikilli ónotatilfinningu. Þá hugsaði ég strax að það gæti verið áhugavert að nota trúna og það góða til að sýna andstæðuna. Mig langaði að fólk fylltist strax óhug við að sjá bókarkápuna og kalla þannig fram sömu tilfinningu og ég fékk við að lesa bókina,“ segir hún.

Sigrún segir að hún hafi lagst í nokkrar rannsóknir á útliti Biblía og minni kápan meira á klassíska Biblíu en nútímalega. „Biblían er reyndar yfirleitt með gylltum kanti frekar en rauðum. Við ákváðum hins vegar að fara þessa leið, enda rauður tákn blóðs og hryllings.“

Ekki þessi týpíska spennubókarkápa

„Þetta er allt svolítið óvenjulegt fyrir þessa gerð skáldsögu, að nota gyllingu, leður, lit á kantinn og band inn í hana. Þótt þær séu oft flottar langaði mig ekki að vinna með einhverja týpíska hauskúpu-spennubókarkápu, heldur vinna með góða hugmynd og gera eitthvað sem hefði áhrif, kápu sem myndi kveikja sterkar tilfinningar,“ útskýrir Sigrún.

Höfundurinn virðist sjálfur hæstánægður með niðurstöðuna. „Þessi kápa segir allt sem segja þarf. Svartigaldur er Biblía unnenda spennubóka,“ segir hann í samtali við DV.

„Það var mjög gaman og mikill heiður að vinna með Stefáni Mána og hann var mjög til í þetta. Sögur Bókaútgáfa stökk líka strax á þetta og var til í að fara alla leið, meira að segja að sleppa strikamerkinu á kápunni til að skemma ekki útlitið – það verður bara á plastinu,“ segir Sigrún.

„Það var hins vegar svolítið erfitt að finna einhvern sem gat prentað hliðina rauða, á endanum þurfti að gera það erlendis, í prentsmiðju í Lettlandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“