Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vilja fara alla leið ef lækka á kosningaaldurinn niður í 16 ár. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem var á Tenerife þegar DV náði af honum tali, gaf óljós svör um hvort það ætti við um áfengiskaupaaldurinn. Svo virtist sem hann væri í það minnsta til í að lækka aldurinn niður í 18 ár, ef það væri vilji löggjafans að fólk væri orðið sjálfráða. Hvort það hafði áhrif að Brynjar væri á Tene eða ekki skal látið liggja milli hluta.