fbpx
Þriðjudagur 29.júlí 2025
Fréttir

Appelsínugul viðvörun í gangi: Mjög hvasst seinni partinn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. febrúar 2019 12:46

Það er vetrarlegt í Reykjavík en útlit fyrir hláku víða

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni hvessir sunnan til í dag og getur vindur farið upp í 28 m á sekúindu undir Eyjafjöllum og í Mýradal. Vindhviður afar upp í 50 m á sekúndur. Hætta á skafrenningi hefur minnkað en appelsínugul viðvörun frá Veðurstofunnni er í gildi. Yfirlit yfir veðurfar og færð frá Vegagerðinni er eftirfarandi:

Það hefur hlánað og því eru minni líkur á skafrenningi.  Hvessir hins vegar sunnan til í dag.  Austan 23-28 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.  Hviður allt að 50 m/s frá um kl. 13-14. Veðrið nær hámarki um kl. 19 en svo lægir um miðnætti. Í Öræfum verður byljótt við Sandfell frá um kl. 15 og fram á nótt.

Áætlanir um mögulegar lokanir hafa verið endurskoðaðar

Vegna slæms veðurútlits er nú reiknað með þessum lokunum:

Hellisheiði og Þrengsli: Líkleg lokun um kl. 16:00 í dag – Líkleg opnun: 01:00 e. miðnætti.

Möguleg hjáleið: Suðurstrandarvegur um Grindavík.

Hvolsvöllur – Vík: Líkleg lokun kl. 13:00 í dag. – Líkleg opnun:  kl 01:00 e. miðnætti.

Skeiðarársandur (frá Núpsstað), Öræfi og að Höfn: Líkleg lokun kl. 14.00 i dag – Líkleg opnun:  kl. 06:00 í fyrramálið (6. feb.)

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er víðast hvar á landinu, hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Kalt er í veðri norðanlands en hiti víða um og yfir frostmarki sunnanlands.

Suðvesturland: Allvíða hálka eða hálkublettir. Skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Bláfjallavegur er þungfær en einnig austan Þingvallavatns, milli Lyngdalsheiðarvegar og Írafoss.

Vesturland: Hálka eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur.

Vestfirðir: Víðast hvar hálka á vegum og sumstaðar skafrenningur, ekki síst á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Bjarnarfjarðarhálsi en þungfært er norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálka eða hálkublettir á flestum aðalleiðum en víða snjóþekja á útvegum.

Norðausturland: Hálka flestum vegum. Þungfært er á kafla innansveitar í Vopnafirði.

Austurland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar. Éljagangur er á Fagradal og með ströndinni suður í Álftafjörð.

Suðausturland: Hálkublettir og hálka.

Suðurland: Víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja. Skafrenningur er á Lyngdalsheiði.

Ábending til vegfarenda

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegi þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar.  Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Högg í maga United
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur segir hagsmuni Íslands í húfi – „Nú er ekki tími fyrir pólitískar skotgrafir eða flokkadrátt“

Vilhjálmur segir hagsmuni Íslands í húfi – „Nú er ekki tími fyrir pólitískar skotgrafir eða flokkadrátt“
Fréttir
Í gær

Ósáttur MBA-nemi fór í stríð við HÍ – „Varstu vísvitandi að ljúga því að mér“

Ósáttur MBA-nemi fór í stríð við HÍ – „Varstu vísvitandi að ljúga því að mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hönnun nýja landspítalans fellur ekki í kramið hjá Illuga – „Þetta er ekki fallegt“

Hönnun nýja landspítalans fellur ekki í kramið hjá Illuga – „Þetta er ekki fallegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnstu munaði að Einar Rúnar missti af 57 ára afmælisdeginum – Þvingaður út af vegi við Kvísker

Minnstu munaði að Einar Rúnar missti af 57 ára afmælisdeginum – Þvingaður út af vegi við Kvísker