fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Fréttir

Hildur Lilliendahl: „Takk fyrir þetta, Jón Steinar. Vonandi líður þér betur.“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 21. október 2018 11:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist vona að Jóni Steinari líði betur fyrir það að hafa nafngreint vinkonu sína og samstarfskonu í Morgunblaðinu í fyrradag. Segir Hildur í opinni færslu á Facebook að síðan Jón Steinar nafngreindi vinkonu sína fyrir það að hafa kallað hann „krípí“ í lokuðum hópi á internetinu hafi tugir manna deilt mynd af henni á samfélagsmiðlum með virkilega ljótum athugasemdum. Segir Hildur ofbeldið sem ríði yfir Viktoríu í dag sé með því viðbjóðslegasta sem hún hafi séð.

„Hún hatar karla. Hún er forhert og ofdekruð. Það á að reka hana úr vinnunni (sinnum hundrað). Hún er sérfræðingur í hatri gegn karlmönnum, illyrðum og rógi. Hún er orðljót með afbrigðum. Það er keytulykt af henni. Hún er ógæfulegur pilsvargur og hún er asni. Hún er brundfés og BITCH !! og afleiðing úrkynjunar og aumingjavæðingar. Það er æðissvipur í augunum á henni og eini munurinn á augnaráði hennar og jórtrandi belju er gáfnaglampinn í augum beljunnar. Hún sýgur samborgara sína um lífsviðurværi um leið og hún spýr yfir þá óþverra. Hún er fasisti. Hún er gráðug og spillt og það á að fiðra þessa glyðru. Það á að flæma þetta ógeð úr Ráðhúsinu og hún er ófullnægð og miðaldra. Hún er forréttindapía sem vinnur við að ata saklaust fólk aur. Hún hefur níð og mannorðsmorð á samviskunni. Hún er geðbilað drullupakk og viðbjóður. Hún er ógeð og kríp sem á að skammast sín og fara til andskotans,“

var sagt um vinkonu Hildar. Hildur lýkur færslunni á orðunum: „Takk fyrir þetta, Jón Steinar. Vonandi líður þér betur.“

Hefur málið vakið mikla athygli undanfarna daga og stór orð látin falla á báða bóga. Sjá einnig: Jón Steinar kallaður fáviti, ógeð og kvikindi á lokaðri síðu – Nafngreinir þá sem níða hann

Vefritið Knúz.is deilir færslu Hildar og segir:

„Sama fólkið og stekkur á hneykslunarvagninn vegna ummæla fólks í lokuðum hópi, notar nú tækifærið og eys soranum yfir nafngreinda einstaklinga. Þetta er ekki bara viðbjóður. Þetta er hatur.“

Hér fyrir neðan má lesa stöðuuppfærslu Hildar í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“

Sonur Lindu slasaður eftir stórhættulegt skemmdarverk á reiðhjólinu hans – „Ég ætlaði varla að trúa því að þetta væri ennþá í gangi“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns

Lögreglan á Suðurnesjum ætlar ekki að hefja nýja rannsókn á Geirfinnsmálinu – Bókarhöfundar nafngreindu meintan banamann Geirfinns
Fréttir
Í gær

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga
Fréttir
Í gær

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn