fbpx
Laugardagur 10.janúar 2026
Fréttir

ÍSEY skyr frá MS í útrás til Japans

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 29. maí 2018 14:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

MS skrifaði í dag undir framleiðslu- og vörumerkjasamning á Ísey skyri við Nippon Luna, mjólkurvörufyrirtæki í eigu Nippon Ham, sem er eitt stærsta fyrirtæki Japans á sviði ferskra og frosinna matvæla og jafnframt fjórði stærsti kjötframleiðandi heims. Nippon Ham veltir þrettán hundruð milljörðum íslenskra króna á ári og hefur miklar væntingar um að Ísey skyr eigi eftir að styrkja stöðu þeirra á japanska mjólkurvörumarkaðnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MS.

Þar segir að markaðurinn fyrir jógúrtvörur í Japan sé sá næst stærsti í heiminum, á eftir Bandaríkjunum og veltir um 5 milljörðum dollara á ári. „

Með hliðsjón af því og styrk viðsemjandans er þetta stærsti samningur sem MS hefur gert um framleiðslu á Ísey skyri. Samningurinn var undirritaður í höfuðstöðvum Nippon Ham í dag af forstjórum Nippon Luna, MS og íslensk japanska fyrirtækisins Takanawa sem kom að gerð samningsins með MS og mun sjá um framkvæmd hans í framtíðinni. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands og Elín Flygenring, sendiherra Íslands í Japan, voru viðstödd undirritunina,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að reist verður ný verksmiðja fyrir framleiðslu á Ísey skyri í Japan og mun sala hefjast strax í ársbyrjun 2019.

„Í Japan búa um 127 milljónir og þar eru 70.000 matvöruverslanir, en markmiðið er að koma Ísey skyri í sem flestar verslanir í Japan á næstu árum. Árið 2020 verða Ólympíuleikarnir haldnir í Tókýó og er von samstarfsaðila MS í Japan að fyrir þann tíma verði Ísey skyr orðið hluti af mataræði japanskra íþróttamanna.“

Í tilkynningunni segir að MS hafi fundið fyrir miklum áhuga frá Japan undanfarin ár og þannig hafi sendiráðið í Japan fengið fjölda fyrirspurna um hvar sé hægt að kaupa Ísey skyr þar í landi. Þá fjallaði tímarit í eigu 7-11, stærstu verslunarkeðju Japans, nýlega um Ísey skyr þar sem vörunni var lýst á þann hátt að hér væri komin sú vara sem helst vantaði á japanska mjólkurvörumarkaðinn. Japan er það land sem önnur ríki í Asíu horfa til þegar kemur að vörunýjungum og binda ráðamenn MS vonir við að innkoma Ísey skyrs á japanskan markað muni opna asískan markað enn frekar fyrir Ísey skyr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kristín ómyrk í máli: „Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig“

Kristín ómyrk í máli: „Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Árásin á hann í Áramótaskaupinu var til hreinnar skammar“

„Árásin á hann í Áramótaskaupinu var til hreinnar skammar“
Fréttir
Í gær

Dauðsföll í árásinni á Venesúela mun fleiri en Hvíta húsið hélt fram – Sjö Bandaríkjamenn særðir

Dauðsföll í árásinni á Venesúela mun fleiri en Hvíta húsið hélt fram – Sjö Bandaríkjamenn særðir
Fréttir
Í gær

Oddviti Miðflokksins harðorður gagnvart Dönum vegna Grænlands – Tekur undir með Donald Trump

Oddviti Miðflokksins harðorður gagnvart Dönum vegna Grænlands – Tekur undir með Donald Trump
Fréttir
Í gær

Gagnrýnir langvarandi einangrun Anítu – „Getur valdið alvarlegum og jafnvel varanlegum skaða“

Gagnrýnir langvarandi einangrun Anítu – „Getur valdið alvarlegum og jafnvel varanlegum skaða“
Fréttir
Í gær

Aldraður leigubíltjóri fær ekki rekstrarleyfi vegna gamalla vændiskaupa

Aldraður leigubíltjóri fær ekki rekstrarleyfi vegna gamalla vændiskaupa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjaftaglaði starfsmaðurinn rekinn og kærður

Kjaftaglaði starfsmaðurinn rekinn og kærður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn fékk óvæntan tölvupóst í morgun – Sýnir að fólk er almennt góðhjartað

Björn fékk óvæntan tölvupóst í morgun – Sýnir að fólk er almennt góðhjartað