fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Selur eigið borðspil til að kosta sumarnám

Alexandra heilluð af skrifum og sjálfboðavinnu

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 18. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexandra Ýr van Erven, nemi í stjórnmálafræði og ensku, er á leið í sumarnám í skapandi skrifum og bókmenntum við Columbia-háskólann í New York. Til að fjármagna námið fékk Alexandra þá skemmtilegu hugmynd að hanna borðspil sem hún nefnir „Komum Alexöndru til Columbia“ og gefst fyrirtækjum og einstaklingum kostur á að styrkja hana með því að kaupa reit á spilaborðinu.

„Námið er námslánahæft, en ég hafði hugsað þessa aðferð til að létta á námsláninu. Mig langaði að gera eitthvað skemmtilegt, svo kom þessi hugmynd upp, þróaðist og varð svo lokaniðurstaðan,“ segir Alexandra sem segist mikil spilakona sjálf, allt frá því að leggja kapal og í að spila borðspil.

Alexandra er 23 ára, nemi í stjórnmálafræði og ensku við Háskóla Íslands og er hún á öðru ári af þremur. Fyrsta árið tók hún í fjarnámi frá Amsterdam, svo þegar hún kom heim síðastliðið haust og hóf nám á öðru ári byrjaði hún einnig í stjórn ungmennaráðs UN Women og ritstjórn Röskvu. Síðastliðinn þriðjudag var hún kjörin formaður ungmennaráðs UN Women, er að vinna hjá þeim sem götukynnir og mun vinna við það þar til sumarnámið hefst. Einnig starfar hún sem þjónn á Sæta svíninu.

Komum Alexöndru til Columbia

Spilið er teningaborðspil í einföldustu mynd. Á því eru 42 reitir sem er dagafjöldinn sem sumarnámið varir. Skólagjöld eru 9.780 Bandaríkjadollarar sem gera um það bil 25.000 krónur á dag og býðst fyrirtækjum og einstaklingum að kaupa reit á spilaborðinu fyrir 25.000 krónur og hafa þar lógó fyrirtækisins eða annað sem þeim dettur í hug.

„Spilið er einfalt og virkar eins og snákaspilið, nema í stað snáka þá eru ýmis New York-„twist.“ Til dæmis kemst maður í efstu línu þegar maður lendir á Empire State-byggingunni, Brooklyn-brúin hleypir manni lárétt áfram, en „booze-cruise“ niður Hudson skilar manni á byrjunarreit,“ segir Alexandra. „Reitirnir á spilinu verða lógó fyrirtækja eða styrktaraðila, eins vel og gengur að selja þá. Ég er búin að selja átta þeirra og svo sé ég bara hvernig gengur, en ég vona að ég nái að senda það í prentun í lok næstu viku (23. júní). Þannig að núna er lokaspretturinn. Svo þegar spilið er farið í prentun þá fer ég að selja spilið sjálft.“

Nafnið á spilinu verður Komum Alexöndru til Columbia, fyrsti reiturinn er í Reykjavík og markmið spilsins er að komast á lokareitinn, Columbia. Spilið verður fyrir 5–6 manns og gerir Alexandra sér vonir um að það verði á spilaborðum allra landsmanna í sumar.

Alexandra segir spilið hafa fengið jákvæðar viðtökur. „Flest fyrirtæki sem ég hef talað við finnst þetta frumlegt, ég er búin að opna fyrir forpantanir á spilinu, sem hefur gengið mjög vel. Einn einstaklingur er búinn að kaupa sér einn reit og ætlar bara að setja inn einhverja sæta mynd,“ segir Alexandra.

Uppkast að spilinu, sem verður einfalt teningaspil líkt og snákaspilið klassíska.
Komum Alexöndru til Columbia Uppkast að spilinu, sem verður einfalt teningaspil líkt og snákaspilið klassíska.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mikilvægt að gefa af sér

Foreldrar Alexöndru eru báðir starfandi í heilbrigðisgeiranum og segir hún það hafa mótað hana í uppeldinu og hún viljað gefa af sér: „Þetta er ekki auðveldasti geirinn að starfa í, ég lít rosalega upp til þeirra og þau eru góðar fyrirmyndir.

Það gefur manni svo mikið að gefa af sér, eins og til dæmis skólakynningar fyrir UN Women, það er svo dýrmætt að spjalla við krakka bæði í grunn- og framhaldsskóla um það sem skiptir máli, spjalla um kvenréttindi, He for She-herferðina, maður fær þá tilfinningu að maður sé að hjálpa til, gera eitthvað sem skiptir einhverju máli.

Ég er rosalega heilluð af skrifum og draumurinn er að komast í framhaldsnám erlendis. Mig langar að einbeita mér að skrifum, en svo togar í mig að halda áfram í starfi eins og ég er í hjá UN Women, gefa af sér. Það er af svo mörgu að taka í heiminum og mig langar að hjálpa sem mest, en svo kannski hjálpa ég mest með því að skrifa.“

Alexandra er ung, á uppleið og vill gefa af sér í framtíðinni.
Ung á uppleið Alexandra er ung, á uppleið og vill gefa af sér í framtíðinni.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta