fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Ásmundur: Óttasleginn og boginn faðir sat í framsætinu – Borguðu 50 þúsund á viku til að halda vandamálinu í skefjum

Gagnrýnir Pírata – Vill birta myndir af dópsölum á ljósastaurum – Engin hjálp fyrir aðstandendur

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Sunnudaginn 26. júní 2016 23:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þrátt fyrir alla gleðina í þjóðfélaginu renna tár vonleysis þar sem sterk fíknin leggst svo þungt á foreldra og fjölskyldur fíkla að þau eru að bugast á sama tíma og þjóðin öll spratt á fætur til að fagna frábærum sigri á EM í fótbolta. Það er löng leið frá grænum völlum Frakklands í Konukot, Skýlið eða runna við Kjarvalsstaði þar sem lítil sál sefur úr sér vímuna, sundurbarin í blóðugum fötum og líkaminn er fullur af ólæknandi kvillum en fíknin svo sterk að engu tauti er viðkomandi,“ segir Ásmundur Friðriksson þingismaður Sjálfstæðisflokksins um tvö alvarleg mál sem hann hefur komist í tær við á undanförnu. Átakanleg mál sem hafa haft mikil áhrif á hann sem þingmaðurinn tjáir sig um á Facebook. Þá gagnrýnir hann úrræðaleysi í heilbrigðiskerfinu.

Ásmundur fjallar um barn sem hefur mátt horfa upp á fíkniefnaneyslu og ofbeldi á heimili sínu og hjón í kringum áttrætt sem voru neydd til að taka son sinn, fyrrum fanga og fíkniefnaneytenda því enginn vildi taka við honum lengur. Eina leiðin sem þau sjá er að hella hann fullann til að halda honum góðum. Það kostar þau samkvæmt alþingismanninum 50 þúsund á viku. Um leið gagnrýnir Ásmundur stefnu Pírata í fíkniefnamálum.

„Heima sitja foreldrarnir, afinn og amman með barnabarnið sem má engan tíma missa í undirbúningi að farsælu lífi. Þátttaka í knattspyrnumótum um allt land setur afann og ömmuna á sama stað og fyrir 35 árum síðan, keyrandi á milli tjaldstæða og undirbúa ömmustrákinn fyrir næsta mót. Það er mikil ábyrgð að vera pabbi og mamma, afi og amma, fjölskylda. Halda andlitinu heima með barnabarnið þegar síminn hringir og fréttir „úr hinum heiminum“ af barninu berast. Svo svakalegar að það er ekki hægt að setja sig í þessi spor og ég reyni ekki að lýsa ástandinu.“

Segir Ásmundur og heldur áfram:

„Þetta er sagan sem ég fékk að heyra í símtali þegar hjartað var að ná jafnvægi eftir sigurmarkið á þriðjudaginn. Ein saga af mörgum og ég hef hugsað lítið um annað síðan og reyni stöðugt að setja mig í spor góðra vina, en get það ekki og grúfi andlitið í blautan koddann til að sofna. Stutt frétt úr langri sögu þar sem kerfið er vanmáttugt og fjölskyldan oftast ein að berjast áfram án þekkingar eða verkfæra til lækninga.“

Rennur ábyrgð foreldranna aldrei út?

„Það er löng leið frá grænum völlum Frakklands í Konukot, Skýlið eða runna við Kjarvalsstaði þar sem lítil sál sefur úr sér vímuna, sundurbarin í blóðugum fötum“

Ásmundur segir svo frá sunnudagsheimsókn á heilbrigðisstofnun fyrir skömmu. Þar vatt sér að honum eldri kona og brotnaði hún saman og grét í fangi hans. Hún var að leita ráða vegna sonar síns.

„Við gengum saman út og hún sagði mér söguna löngu og erfiðu. Sonurinn á sextugs- eða sjötugsaldri, óreglumaður sem hafði dvalið í hegningarhúsinu síðust nætur og á sunnudagsmorgni var hringt í aldraða foreldrana og þau beðin að sækja drenginn sinn. Ég sem hélt að slíkar hringingar ættu bara við með börn undir lögaldri. Lögreglan í Reykjavík vildi ekki lengur skjóta undir hann skjólshúsi, meðferðastofnanir vildu ekki taka við honum, Gistiskýlið eða önnur sambærileg úrræði voru honum lokuð. Kjarrið við Kjarvalsstaði vildi hann ekki, þjóðfélagið gafst upp á vandamálinu og hringdu í aldraða foreldrana sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð.“

Á leiðinni út spurði Ásmundur sig hvort ábyrgðin rynni aldrei út.

„Í bíl fyrir utan sat óttasleginn og boginn faðirinn en í aftursætinu sat svo illaútlítandi vera að mér fannst hún vart af þessum heimi. Ég reyni ekki að lýsa því ástandi. Þetta var á sunnudagsmorgni sem samfélagið gafst upp á verkefninu og sendi „drenginn“ aftur í hendurnar á mömmu og pabba. Þau eru líklega nær áttræðu.“

Send með soninn heim

„Eina ráðið var að fara í ríkið á hverjum degi og kaupa eina flösku, halda vandamálinu í skefjum sem kostaði þau 50,000 kall á viku“

Ásmundur kveðst hafa reynt allt og ráðlagði þeim að fara með hann á geðdeild Landspítalans. Þar var þeim neitað um hjálp þar sem ekki var hægt að svipta hann sjálfræði. Þau tóku hann því með sér heim.

„Sorgleg niðurstaða hvernig brugðist er við. Ekki endilega ógæfusömum einstaklingi heldur öldruðum foreldrum sem eiga að leysa óleysanlegan vanda. Ég fylgdist með næstu daga og vikur með símtölum. Eina ráðið var að fara í ríkið á hverjum degi og kaupa eina flösku, halda vandamálinu í skefjum sem kostaði þau 50,000 kall á viku. Hvað áttu ráðþrota foreldrar að gera?“

Gagnrýnir Pírata

„Birtum myndir af „Fjölskylduhryðjuverkamönnum,“ segir Ásmundur og á þá við eiturlyfjasalana. Sölumenn sem eru efst í píramídanum og sleppa. „Þeir hagnast á læknadópinu sem drepur og stráfellir unga fólkið. Gamlir neytendur segja ekki einu sinni til þeirra, það ríkir algjör þögn um þennan glæpalýð.“

Ásmundur dregur Pírata inn í frásögn sína en að hans mati virðast Píratar og Persónuvernd ganga of hart fram í að verja persónuverndarsjónarmið og frelsi einstaklingsins.

„Þingið með Pírata í broddi fylkingar og Persónuvernd ganga svo langt að það skal verja alla eins lengi og langt og hægt er. Það má ekki taka sjálfræðið af fólki þó það sé í orðsins fyllstu merkingu að drepa sjálft sig og foreldra sína.“

Vill Ásmundur að gripið sé inn í þegar fólk hafi ekki stjórn á neyslu sinni.

„Og hvers vegna að verja sölumenn dauðans með persónuverndarsjónarmið í huga? ÉG vil fá myndir af þessum „Fjölskylduhryðjuverkamönnum“ og hengja þær upp á öllum ljósastaurum í landinu. Byrjum þar og sjáum hvort við náum árangri í að minnka framboð á eiturlyfjum og bjarga mannslífum.“

Er eitthvað í þessu fyrir mig?

„ÉG vil fá myndir af þessum „Fjölskyldu- hryðjuverkamönnum“ og hengja þær upp á öllum ljósastaurum í landinu“

Ásmundur segir þessi tvö atvik ekki víkja úr huga hans nú þegar gleðin ræður för í þjóðfélaginu.

„Við sem endalaust heimtum betri kjör, hærri laun og meiri kaupmátt sjáum ekki út fyrir þægindaramman. Gætum við hætta að hugsa um okkur sjálf um stund og hugsa um stöðu þeirra sem eiga enga möguleika í samfélaginu. Sameinast um að bæta stöðu þeirra og fjölskyldna sem vita ekki sitt rjúkandi ráð.“

Ásmundur segir þetta ekkert einsdæmi. Svipað sé komið fyrir hundruðum í landinu.

„Eða er kannski ekkert í þessu fyrir okkur? Er það kannski staðan í þjóðfélaginu að engin geri neitt nema það sé „eitthvað í þessu fyrir mig,“ segir Ásmundur og bætir við að lokum:

„Njótum áframhaldandi velgengni og vinnum stóra sigra, þjóðfélagið þarf á því að halda. En við megum aldrei gleyma eða missa sjónar af því að okkar veikustu systur og bræður þurfa á aðstoð samfélagsins að halda og vernd fyrir ógninni sem felst í fíkninni sem óvandaðir aðilar gera sér að féþúfu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta