Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson hefur samið ljóð um umtalaðasta hest landsins, Kolfinn frá Biskupstungum. Hesturinn sló í gegn í kvöldfréttum Stöðvar tvö í gær þegar hann skellti sér á bak á merinni Tign með þeim afleiðingum að söngvarinn og ukulele leikarinn Daníel Aron datt af baki. Sjáðu atvikið hér að neðan.
Gylfi virtist hafa gaman af atvikinu og samdi ljóð sem hann birti á Facebook í kjölfarið.
Daníel Aron sér demdi á svið
danslagið flutti með prýði
Lillinn á klár um þá lifnaði við
og lýsti yfir alsherjar stríði