Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í sautjánda sinn í miðborg Reykjavíkur um Verslunarmannahelgina.
Hátíðin er hins vegar ekki bara fyrir innipúka í ár, eins og verið hefur, en þetta er í fyrsta sinn sem boðið verður uppá ítarlega dagskrá fyrir utan tónleikastaðina Gaukinn og Húrra.
Sérstakt plötusnúðasvið verður undir berum himni og þar verður skífum þeytt alla helgina.
Meðal annarra sem koma fram eru plötusnúðarnir :
Terrordisco, Ewok, Kerr Wilson, Oculus, Battlestar, Krystal Karma.
Aðaldagskrá hátíðarinnar er líka öflug en hún fer eftir sem áður fram innandyra og koma með annars fram tónlistarmennirnir Prins Póló, Aron Can, GDRN, JóiPé x Króli, Valdimar, Mugison!