fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Terry Crews rifjar upp erfiðar æskuminningar: „Við lifðum í martröð í mörg ár“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 21. maí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamanleikarinn Terry Crews vakti mikla athygli með ræðu sinni við athöfn Champion-verðlaunanna á vegum samtakanna Safe Horizon. Crews tók á móti heiðursverðlaununum „Rödd hugrekkis“ og minntist á erfið uppvaxtarár og átakanlegt samband hans við föður sinn sem glímdi við alkóholisma.

„Ein af elstu minningum mínum er þegar ég var fjögurra eða fimm ára gamall. Faðir minn lamdi móður mína í andlitið eins fast og hann gat og rotaði hana,“ segir hann einlægur í ræðunni.

„Ég man eftir að hafa séð hana oft liggjandi á gólfinu, horfandi upp á þennan risastóra mann, og þá hugsaði ég: „Almáttugur, faðir minn segist elska móður mína, en eina sem ég gat hugsað um var að vilja vernda hana og hvað þetta væri allt rangt…“ Ég hugsaði hvað ég þyrfti að vera sterkur, að ég þyrfti að koma mér í gang svo ég gæti verndað hana einn daginn.“

Rödd valdeflingar

Crews tekur fram að þau móðir hans voru dauðhrædd í hvert skipti sem faðir hans steig inn fyrir dyrnar á heimili þeirra. „Ég pissaði í rúmið reglulega þangað til ég varð 14 ára. Við vissum aldrei hvað gæti gerst. Við lifðum í martröð í mörg ár,“ segir hann.

Á hátíðinni voru einnig veitt verðlaun til Tarönu Burke, forsprakka #MeToo-hreyfingarinnar. Burke hlaut verðlaunin „Rödd valdeflingar“ og sagði í ræðu sinni hvað byltingin hefði skipt systur hennar miklu máli. Systir hennar var í ofbeldissambandi í mörg ár og var síðar myrt í máli sem hefur hingað til ekki verið leyst.

Ræðu Burke má sjá að neðan.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar