fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Lítt þekkt ættartengsl: Lögfræðingurinn og hjartaskurðlæknirinn

Fókus
Sunnudaginn 16. desember 2018 20:30

Tómas Guðbjartsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni var greint frá því að saksóknari í Gautaborg í Svíþjóð hefði ákveðið að hefja rannsókn á máli Paolo Macchiarini skurðlæknis, sem fyrstur framkvæmdi plastbarkaaðgerð á mönnum. Málið verður rannsakað sem sakamál en eins og frægt er tengdist Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir málinu. Skjólstæðingur hans, Andemiram Beyene, var sá fyrsti sem lagðist undir hnífinn hjá Ítalanum.

Ingibjörg Guðbjartsdóttir

Einnig hefur gustað um systur Tómasar, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, en þó með óbeinum hætti. Ingibjörg var á árum áður framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands og bar meðal annars ábyrgð á umfangsmikilli rannsókn sem beindist gegn meintum svikum Samherja. Bankinn beitti fyrirtækið stjórnvaldssekt en sú sekt var dæmd ógild í Hæstarétti á dögunum. Reiði forsvarsmanna Samherja hefur opinberlega beinst gegn Má Guðmundssyni seðlabankastjóra en bak við tjöldin eru þeir ekki síður ósáttir við framgöngu Ingibjargar í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar