fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Íslenskur verðlaunahönnuður, Kristjana, hannar kápu afmælispakka Coldplay

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 26. október 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska hljómsveitin Coldplay fagnar 20 ára starfsafmæli með sérstakri útgáfu, The Butterfly Package, eða Fiðrildapakkanum, sem kemur út 7. desember. Pakkinn inniheldur heimildarmynd, tvo diska með „live“ upptökum og mynd frá tónleikum. Þetta er pakki sem allir aðdáendur Coldplay þurfa að eignast.

Það sem vekur þó athygli okkar Íslendinga er að kápa pakkans er hönnuð af Kristjönu S. Williams, sem er margverðlaunaður íslenskur hönnuður. Kristjana býr í London, en hún útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Central St Martin´s. Tvítug opnaði hún verslunina Beyond The Walley og árið 2012 opnaði hún eigið hönnunarstúdíó, KSW Studio.

Hönnun hennar hefur vakið mikla athygli, en hún hefur hannað fatnað, heimilisvöru, veggfóður, vegglistaverk, húsgögn og fleira. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum stórum sýningum, meðal annars London Design Festival.

 

Myndin fyrir Coldplay er klippimynd (collage) sem inniheldur fjölda sjónrænna myndefna sem dregin eru af listaverkum hljómsveitarinnar, myndböndum og sögu hennar.

Plötuna má kaupa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar