Valur 1-0 Rosenborg
1-0 Eiður Aron Sigurbjörnsson(84′)
Valur vann gríðarlega sterkan sigur í Meistaradeild Evrópu í kvöld er liðið mætti norska stórliðinu Rosenborg.
Leikur kvöldsins fór fram á Origo-vellinum á Hlíðarenda en um var að ræða fyrri leikinn af tveimur.
Rosenborg er gríðarlega stórt lið í Noregi en það voru Valsmenn sem höfðu betur í kvöld með einu marki gegn engu.
Eina mark leiksins gegn Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrir Val seint í síðari hálfleik.
Valsmenn eru því í ágætri stöðu fyrir seinni leikinn í Noregi sem fer framm eftir viku.