fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025

Silfuregils

Ekkert merkilegt hjá Evrópuleiðtogum

Ekkert merkilegt hjá Evrópuleiðtogum

Eyjan
24.10.2013

Nú er greint frá því að NSA-stofnunin í Bandaríkjunum hafi hlerað síma 35 þjóðarleiðtoga. Meðal þeirra er Angela Merkel, kanslari Þýskalands. En það segir líka að NSA hafi orðið einskis vísari, stofnunin hafi ekki komist að neinu skipti máli með þessum hlerunum. Kemur kannski ekki sérlega á óvart. Leiðtogar Evrópuríkja eru sjaldnast að leggja á Lesa meira

Paxman gegn Brand – um möguleikann á öðruvísi stjórnmálum

Paxman gegn Brand – um möguleikann á öðruvísi stjórnmálum

Eyjan
24.10.2013

Leiðist þér ekki að tala við þessa menn? spyr grínistinn Russell Brand sjónvarpsmanninn Jeremy Paxman í viðtali sem fer eins og eldur í sinu um internetið. Paxmann hefur gert það að ævistarfi sínu að tala við stjórnmálamenn. Tilefnið er að Brand er gestaritstjóri tímaritsins New Statesman. Brand segir að stjórnmálamenn þjóni hagsmunum stórfyrirtækja og pólitískrar Lesa meira

Ríkisútvarpið nýtur trausts

Ríkisútvarpið nýtur trausts

Eyjan
24.10.2013

Merkilegt er að sjá sumar niðurstöðurnar í skoðanakönnun MMR um traust til stofnana samfélagsins. Til dæmis það að fjölmiðlar njóta lítils trausts. Þegar spurt er um viðhorf til fjölmiðla segjast aðeins 12,7 prósent treysta þeim. En þegar spurt er um traust til Ríkisútvarpsins er annað uppi á teningnum. 52,3 prósent segjast treysta Ríkisútvarpinu, aðeins lögreglan Lesa meira

Gróska í byggingu tilbeiðsluhúsa

Gróska í byggingu tilbeiðsluhúsa

Eyjan
24.10.2013

Á tíma trúleysis gerast menn mjög stórhuga í byggingu trúar- og tilbeiðsluhúsa. Moska rís líklega í Sogamýri með turni sem – jæja, hann mun varla gnæfa mikið yfir byggðina -, hugmyndir eru uppi um risastóra miðalda-tilgátu-dómkirkju í Skálholti og við Mýrargötu hyggst rússneska rétttrúnaðarkirkjan byggja kirkju með turnun sem eru eins og næpur í laginu Lesa meira

Bingó-áætlunin

Bingó-áætlunin

Eyjan
23.10.2013

Eitt það dularfyllsta í stjórnmálunum um þessar mundir er hin svokallaða Bingó-áætlun sem sagt hefur verið frá í stórum fréttum í Morgunblaðinu tvo daga í röð. Seðlabankinn sver af sér bingóið, en Morgunblaðið ítrekar með því að endurtaka nánast sömu frétt. Bingó er sagt ganga út á að nauðasamningar Glitnis og Kaupþings verði ekki samþykktir Lesa meira

Vigdís á Ströndum

Vigdís á Ströndum

Eyjan
23.10.2013

Í Kiljunni í kvöld förum við alla leið í Norðurfjörð á Ströndum, en þar hefur Vigdís Grímsdóttir vetursetu. Við skoðum staðinn með henni og spjöllum um nýja bók eftir hana, skáldævisögu sem nefnist Dísusaga. Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur hefur tekið saman efni í stóra bók í tveimur bindum, sem nefnast Íslensk vatnabók og Stangveiðar á Lesa meira

Er Framsókn lögð í einelti? Hví er Sjálfstæðisflokkurinn stikkfrí?

Er Framsókn lögð í einelti? Hví er Sjálfstæðisflokkurinn stikkfrí?

Eyjan
23.10.2013

Ekki er ég viss um að það sé rétt að Framsóknarflokkurinn sé að fá verri útreið í fjölmiðlum og hjá stjórnarandstöðunni en þeir sem stjórnuðu landinu á undan. Það er reyndar athyglisvert að Sjálfstæðisflokkurinn er nokkuð stikkfrí. Það er Framsókn sem fær þungu höggin í ríkisstjórninni – en að sumu leyti er það sjálfskaparvíti eftir Lesa meira

Hið dapra sígaunalíf

Hið dapra sígaunalíf

Eyjan
22.10.2013

Nú eru farnar að berast fleiri fréttir af ljóshærðum börnum með Róma-fólki – þeim sem áður hétu sígaunar. Minnir dálítið á söguna um Bláskjá sem var enn lesin í mínu ungdæmi. Líklega þykir hún ekki boðleg í dag vegna rasisma. Ég hef reyndar eitt sinn séð hóp sígauna með einkennilega ljóshært barn. Það var í Lesa meira

Minni bókaútgáfa en í fyrra

Minni bókaútgáfa en í fyrra

Eyjan
22.10.2013

Bókavertíðin er að hefjast – það er tilhlökkunarefni. Vigdís Grímsdóttir er með skáldaævisögu, nokkuð óvenjulega þó; Sjón skrifar um ungan homma á tíma spænsku veikinnar 1918; Guðmundur Andri skrifar um Gröndal; Jón Kalman er með nútímasögu sem gerist meðal annars í Keflavík. En útgáfan er nokkuð minni en var í fyrra. Þá var líka sprenging Lesa meira

Stjórnarandstaðan tefur varla

Stjórnarandstaðan tefur varla

Eyjan
22.10.2013

Menn geta gert of mikið úr því að forsætisráðherra fari í stutt frí. Það er öllum hollt að hvíla sig, fara burt, öðlast fjarlægð á verkefni. Skynja að heimurinn er stór – og að Ísland er fjarri því að vera nafli alheimsins. Sigmundur Davíð birtist aftur í viðtali og er býsna herskár. Enn sem komið Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af