Andstæðingar Pútíns deyja hver á fætur öðrum – Svona voru dularfull örlög þeirra
FréttirMargir rússneskir olígarkar og aðrir áhrifamenn í rússnesku samfélagi hafa látist á dularfullan hátt frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar. Margir þeirra voru andstæðingar Pútíns og höfðu gagnrýnt hann opinberlega. Svo ótrúlegt sem það kann að virðast, eða kannski ekki, þá eru ákveðin líkindi með dánarorsök þeirra flestra. Í gegnum tíðina hafa Lesa meira
Hunsaði fyrirmælin og hringdi heim – „Við fengum allir leyfi til að láta slátra okkur“
FréttirRússneskur hermaður hunsaði fyrirmælin sem honum og öðrum hermönnum höfðu verið gefin og hringdi í mömmu sína. Hann er ekki einn um að hafa gert þetta því fjöldi rússneskra hermanna hefur hringt heim frá vígstöðvunum þrátt fyrir að það sé bannað. „Enginn lætur okkur fá mat lengur mamma. Birgðirnar okkar eru ónothæfar í hreinskilni sagt. Lesa meira
Bæði Úkraína og Rússland segjast vilja friðarviðræður – En er það rétt?
FréttirRússneskir ráðamenn hafa að undanförnu sagt að Rússar séu reiðubúnir til friðarviðræðna við Úkraínumenn en hafa um leið sagt að Úkraínumenn verði að horfast í augu við þá stöðu sem uppi er og eiga þá við að Rússar hafa hluta af Úkraínu á sínu valdi. Úkraínumenn hafa lengi sagt að þeir séu ekki reiðubúnir til Lesa meira
Bjóða rússneskum hermönnum að frysta sæði þeirra þeim að kostnaðarlausu
FréttirRússneskir hermenn, sem hafa barist í Úkraínu og munu berjast þar í framtíðinni, eiga þess nú kost að láta frysta sæði úr sér í rússneskum sæðisbönkum og er þessi þjónusta þeim að kostnaðarlausu. Rússneska Tass-fréttastofan skýrir frá þessu. Haft er eftir Igor Trunov, forstjóra samtaka rússneskra lögmanna, að heilbrigðisráðuneytið hafi samþykkt tillögu hans um að bjóða upp á Lesa meira
Fyrrum Rússlandsforseti með dökka spá fyrir næsta ár – ESB hrynur og borgarastyrjöld í Bandaríkjunum
FréttirDmitry Medvedev, fyrrum forseti Rússlands og núverandi formaður rússneska öryggisráðsins, hefur sent frá sér spá um hvað gerist á næsta ári. Óhætt er að segja að spá hans sé ansi svört. Medvedev, sem hefur verið náinn samstarfsmaður Vladímír Pútíns, forseta, árum saman, er mjög í nöp við Vesturlönd og telur þau uppsprettu alls ills. Óhætt er að segja Lesa meira
Fangar eru notaðir sem fallbyssufóður í „hakkavélinni“ – Nú hafa þeir fengið nóg
FréttirMálaliðar á vegum Wagnerhópsins hafa orðið fyrir miklu mannfalli í Bakhmut og nú virðist sem þeir hafi misst viljann til að berjast. Orustan um Bakhmut hefur staðið yfir mánuðum saman og hefur bærinn verið kallaður „hakkavélin“ vegna hins mikla mannfalls sem bæði Rússar og Úkraínumenn hafa orðið fyrir. Bardögunum í og við bæinn hefur verið líkt við það sem átti sér Lesa meira
Pútín tók fram fyrir hendur hershöfðingja og skipaði umkringdum hersveitum að berjast til hinsta manns
FréttirVladímír Pútín, Rússlandsforseti, er sagður hafa tekið fram fyrir hendurnar á hershöfðingjum sínum og fyrirskipað umkringdum rússneskum hersveitum að halda kyrru fyrir og berjast til hinsta manns í Úkraínu. Wall Street Journal skýrir frá þessu og segir að Pútín sé sagður haldinn ranghugmyndum um gang stríðsins og hafi svo miklar áhyggjur af valdaröðinni innan hersins og stjórnkerfisins að hann blandi sér Lesa meira
Stríðið í Úkraínu tekur á önnur Evrópuríki – Skortur á skotfærum
FréttirStríðið í Úkraínu hefur áhrif langt út fyrir landsteinana. Bæði Rússar og Úkraínumenn nota svo mikið af skotfærum að þau Evrópuríki, sem útvega Úkraínu skotfæri, eiga í erfiðleikum með að verða sér úti um nóg af skotfærum. The Wall Street Journal skýrir frá þessu og segir að helstu ástæður skotfæraskortsins séu að framleiðslugetan sé ekki næg, það vanti sérhæft vinnuafl, Lesa meira
Gagnrýndi Pútín – Lést við dularfullar kringumstæður um jólin
FréttirÞað sem af er ári hafa að minnsta kosti 15 rússneskir auðjöfrar og áhrifamenn, þar á meðal olígarkar, látist við dularfullar kringumstæður. Svo ótrúlegt sem það er, þá hafa margir þeirra dottið og látist í kjölfarið. Nú hefur enn eitt nafnið bæst við þennan lista, sem er orðinn nokkuð langur, en það er nafn milljarðamæringsins Pavel Antov. Lesa meira
Tvær árásir ættu að hringja viðvörunarbjöllum hjá Pútín
FréttirTvisvar sinnum virðist Úkraínumönnum hafa tekist að gera árásir langt inni í Rússlandi, mörg hundruð kílómetra frá úkraínsku landamærunum. Þetta er mjög athyglisvert og ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá Vladímír Pútín, Rússlandsforseta. Það er að minnsta kosti mat Jacob Kaarsbo, sérfræðings í rússneskum málefnum há dönsku hugveitunni Tænketanken Europa. Í samtali við TV2 sagði hann eftir að Úkraínumenn gerðu árás á Engelsflugvöllinn fyrir mánuði Lesa meira
