Mynd
Pólverjar réðust óvart inn í Tékkland
Pólski herinn hefur viðurkennt að hafa óvart ráðist inn í Tékkland í maí. Talsmenn hersins segja að skammvinnt hernám á hluta landsins hafi einfaldlega verið vegna „misskilnings“.CNN skýrir frá þessu. Það var seint í maí sem pólskir hermenn fóru yfir landamæri ríkjanna og settu upp vegatálma þar.