Fundur í borgarstjórn
EyjanÆtli sé nokkur annar vinnustaður á Íslandi þar sem svona verklag yrði tekið í mál? 14.00 Fundurinn hefst. 14.06 Gísli Marteinn Baldursson inn. 14.20 Þorleifur Gunnlaugsson inn, Sóley Tómasdóttir út. 16.10 Björk Vilhelmsdóttir út, Dofri Hermannsson inn. 16.45 Ólafur F. Magnússon út, Margrét K. Sverrisdóttir inn. 17.17 Ólafur F. Magnússon inn, Margrét K. Sverrisdóttir út. Lesa meira
Ríkisskjólið
EyjanÞví er ekki logið upp á mestu frjálshyggjumennina í Sjálfstæðisflokknum. Alltaf skulu þeir reyna að komast í stöður hjá ríkinu. Margir þeirra þekkja heldur ekki annað.
Fínir menn
EyjanAfhending Háskólasjóðsins í síðustu viku vekur upp ýmsar hugrenningar – ekki allar jafn fagrar. Jú, manni verður auðvitað hugsað til Vestur-Íslendinganna sem gáfu þessa fjármuni af miklum stórhug, fórnfýsi þeirra og ræktarsemi. Hugsjón þessa fólks sem hafði flæmst burt af gamla landinu var að efla menntun meðal þjóðarinnar. Það setti fjármuni í hendur manna sem Lesa meira
Ekki flóafriður fyrir musterisriddurum
EyjanUmberto Eco gerir dulspekinötturum stórkostleg skil í bók sem heitir Pendúll Foucaults. Þetta er bók á svipuðum nótum og Da Vinci lykillinn; bara miklu skemmtilegri og margræðari, skrifuð mörgum árum fyrr. Og ekki sakar að Eco gerir botnlaust grín að öllu saman. Í gærkvöld var í Kompási gerð grein fyrir kenningum eins svona nöttara sem Lesa meira
Áhyggjur af skaupinu
EyjanMenn eru að hafa áhyggjur af 60 sekúndna auglýsingatíma í áramótaskaupinu. Ég myndi hafa meiri áhyggjur af því hvernig skaupið hefur eyðilagt áramótapartí á Íslandi í fjörutíu ár. Það er rosalegur antíklímax að horfa á sjónvarpið rétt fyrir miðnætti á gamlárskvöld. Svo byrjar sama tuðið ár eftir ár: Hvernig fannst þér skaupið? Þessi lína er Lesa meira
Sama gamla
EyjanNú má vera að friðargangan á Þorláksmessu sé afar hátíðleg. Mér hefur samt alltaf virst þetta vera ganga fyrir mjög harða vinstrimenn – alveg út í það sem kallast loony left á Bretlandi. Svo eru þarna innanum samtök eins og Félag leikskólakennara, Friðar- og mannréttindahópur BSRB og Friðar- og mannréttindanefnd Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar. Fundarstjórinn þessa Þorláksmessuna Lesa meira
Veruleiki og órar
EyjanSvona er raunveruleiki lögreglustarfsins. Lág laun, of mikið álag, uppsagnir, erfitt að manna stöður. Almenna löggæslan – sú sem snýr að daglegu lífi borgaranna – meðan tími og peningar fara í gæluverkefni sem hafa keim af her og njósnum. Dómsmálaráðherrann er að reyna að sverja af sér er með óra um heimavarnalið, hjálma, skildi – Lesa meira
Misskilningur um Miðbæinn
EyjanÍ fréttatilkynningu boðenda fundar sem haldinn var um Miðbæinn í kvöld segir: „Til stendur að rífa nærri 100 hús í miðbæ Reykjavíkur, á Laugaveginum, Hverfisgötunni og í Þingholtunum.“ Jú, það er umdeilanlegt hvort rífa skuli sum húsin á Laugaveginum – líklega ganga niðurrifsáformin þar aðeins of langt. En þetta á ekki við um Nikebúðina svokallaða Lesa meira
Skífan og Starbucks
EyjanSkífan er hreint ótrúlega léleg búð. Vöruúrvalið þar er svo slæmt að það er nánast ólýsanlegt. Fyrir nokkrum árum tóku eigendur Skífubúðanna sig til og ráku flestallt starfsfólk sem hafði eitthvað vit á tónlist. Sumt af þessu fólki hafið starfað í búðunum um árabil og myndað tengsl við viðskiptavinina. Ég man sérstaklega eftir Grétari sem Lesa meira