fbpx
Sunnudagur 22.febrúar 2026

Óflokkað

Fallið skipulag

Fallið skipulag

Eyjan
25.01.2008

Með ákvörðuninni um að kaupa húsin á Laugavegi 4 og 6 er ljóst að deiliskipulag Laugavegarins er fallið. Mikil vinna fór í það á sínum tíma, með samráði við kaupmenn við Laugaveginn, ekki síst Bolla Kristinsson í versluninni Sautján. Verslunarhúsin sem hann átti til skamms tíma bjóða af sér einstaklega góðan þokka, ekki síst hús Lesa meira

Hvílíkt dæmalaust klúður

Hvílíkt dæmalaust klúður

Eyjan
25.01.2008

580 milljónir fyrir ljóta og ónýta kofa þar sem aldrei hefur neitt þrifist. Svo er líka hitt: Vill einhver að þetta verði gert upp í einhverri upprunalegri mynd sem enginn man hvað er. Eða stendur til að byggja hús sem líta út fyrir að vera gömul – hús sem eru í „réttum“ anda?

Meiri grimmd í undirheimum

Meiri grimmd í undirheimum

Eyjan
25.01.2008

Þessi orð má lesa á bloggsíðu þeirrar ágætu blaðakonu Margrétar Hugrúnar Gústafsdóttur: „Ég talaði við gamlan vin minn í dag. Hann hafði verið sober í nokkur ár en féll um skamma hríð aftur fyrir fíkinefnadjöflinum og dansaði í nokkra daga. Á þessum dögum hitti hann gamla félaga sína úr „bransanum“ sem sögðu Reykjavík ekki þá Lesa meira

Mogginn og mótmælin

Mogginn og mótmælin

Eyjan
25.01.2008

Ég skrifaði í gær að það hefði verið veikleiki mótmælanna í Ráðhúsinu í gær að þau voru boðuð af ungliðahreyfingum flokkanna sem voru að missa völdin þennan dag. Það hjálpar kannski ekki að í fjölmiðlum birtast myndir af formanni Ungra jafnaðarmanna í Ráðhúsinu þar sem hún kemur manni fyrir sjónir eins og einhvers konar herforingi. Lesa meira

Hvað er satt?

Hvað er satt?

Eyjan
24.01.2008

Var Sjálfstæðisflokkurinn þá að mynda meirihluta með VG? Það segir Ólafur. Nú er maður orðinn alveg ruglaður.

Ásta fer á loft eins og raketta

Ásta fer á loft eins og raketta

Eyjan
24.01.2008

Það má segja að Ástu Þorleifsdóttir hafi skotið upp eins og rakettu í umbrotunum í borgarstjórninni. Fyrir nokkrum árum var Ásta í VG. Hún var svo í fjórða sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í Reykjavík fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Svo var hún í fyrsta sæti hjá Íslandshreyfingunni í Suðurkjördæmi í alþingiskosningunum. Nú er hún varaformaður Lesa meira

Mislæg gatnamót við Kringluna

Mislæg gatnamót við Kringluna

Eyjan
24.01.2008

Mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut eru eitt helsta stefnumál nýs meirihluta í borgarstjórn. Vilhjálmur Þ. nefndi gatnamótin sem ástæðu þess að Ólafur F. sprengdi gamla meirihlutann í viðtali við sjónvarpið í dag. Ég keyri oft þarna um. Ég verð aldrei var við að það sé sérstakt vandamál að komast yfir Kringlumýrarbrautina. Sérstaklega ekki eftir að voru Lesa meira

Gömul lítil hugmynd

Gömul lítil hugmynd

Eyjan
24.01.2008

Fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar rakst ég á nokkra foringja úr Samfylkingunni. Ég stakk upp við þá að þeir reyndu að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningar. Ég man að það var þvílíkt fussað og sveiað.

Öfug áhrif

Öfug áhrif

Eyjan
24.01.2008

Það hef ég á tilfinningunni að skrílslætin í Ráðhúsinu í dag hafi þveröfug áhrif. Að þau muni vekja samúð með Ólafi F. Magnússyni. Ekki er heldur traustvekjandi að til mótmælanna skuli hafa verið boðað af ungliðahreyfingum flokkanna sem eru að missa völd í borgarstjórninni. Má vera að sé reiði meðal almennra borgara, en hún birtist Lesa meira

Gehry setur danska smáborg á kortið

Gehry setur danska smáborg á kortið

Eyjan
24.01.2008

Sumir hugsa stórt. Smáborgin Sönderborg á Jótlandi hefur fengið frægasta arkitekt heims, Frank Gehry, til að endurskipuleggja hafnarsvæðið í borginni. Að baki liggur sá metnaður að Sönderborg verði bær sköpunar og framfara. Hér í Reykjavík hefur ekkert hreyfst í skipulagsmálum um langt árabil. Í borgarstjórninni ríkir glundroði. Það er rifist um tvö hálfónýt hús. Á Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af