Lítilsvirðing
EyjanVið hljótum að skilja að það er móðgandi, meiðandi og lítilsvirðandi við trúmenn þegar talað er um kvenréttindi. Rétt eins og þegar eru teiknaðar skopmyndir af spámanninum.
Garðveisla
EyjanVið misstum ekki trúna og nokkrir bíbíar voru komnir í garðinn hjá okkur í morgun. Þá tókum við fram múslí, settum smá smjör út í og síðan slurk af lýsi. Það er ennþá vinsælla eins og sjá má á myndinni. Þetta eru svo frostrósirnar eins og þær voru á glugganum í morgun.
Frostrósir
EyjanEitthvert fyrsta leikritið sem var sýnt í sjónvarpinu – á tíma sjónvarpsleikritanna – var Frostrósir. Mig minnir að það hafi verið eftir Jökul Jakobsson. Eins og gjarnt var um sjónvarpsleikritin var þetta mjög hægt; mig rámar í stúlku sem horfði á frostrósir í glugga, strauk svo fingrum yfir þær. Þunglyndislegt. Það lá við uppreisnarástandi í Lesa meira
Góður Gísli
EyjanBorgarfulltrúinn talar af hreinskilni og þekkingu á skipulagsmálum. Við byggð í Vatnsmýri og Örfirisey hefði ég viljað bæta brú yfir á Álftanes – meiri byggð þar – bættum tengslum við Hafnarfjörð og Suðurnesin. Það er nefnilega svo að landrými hérna er ekki ótakmarkað ólíkt því sem sumir virðast halda.
Steinsteypuklassík, bárujárnsrómantík eða póstmódernismi
EyjanÍ athugasemdakerfinu hér hafa spunnist nokkuð góðar umræður í framhaldi af pistli sem ég skrifaði um húsafriðun – og hvort hún væri ef til vill krafa um að byggt yrði með ákveðnum gamaldags hætti í Miðbænum. Þetta er umræða sem maður vildi sjá fleiri arkitekta (og jafnvel stjórnmálamenn) taka þátt í.
Faulkner
EyjanEiríkur Guðmundsson er að flytja röð þátta um William Faulkner í útvarpið. Það er hið besta mál. Þetta var stórmerkilegur rithöfundur og ég held hann eigi frekar erfitt uppdráttar núorðið. Altént hef ég ekki séð að hann sé sérlega mikið nefndur. Þegar ég gekkst upp í að vera mikill bókmenntamaður í menntaskóla var Faulkner í Lesa meira
Ég þoli ekki…
EyjanÉg þoli ekki matardiska sem eru þannig að ískrar í þeim undan hnífapörunum. Ég get ekki horft á myndir með John Malkovich. Ég læt fara í taugarnar á mér þegar íþróttafréttamenn segja að eitthvað sé „ótrúlegt“. Ég slekk á útvarpinu þegar kemur lag með Tom Waits. Ég verð lasinn ef ég borða ostrur, en mér Lesa meira
Vanþakklátir smáfuglar
EyjanVið Kári tókum okkur til og fengum fullan poka af brauðmylsnu í bakaríinu niðri í Lækjargötu í anda gamla góða mottósins – „gleymið ekki smáfuglunum“. Stráðum henni svo snyrtilega í garðinn hjá okkur og höfum verið að bíða eftir því að litlir sætir bíbíar komi og gæði sér á mylsnunni. Enginn fugl hefur enn látið Lesa meira
Zizek í Kiljunni í kvöld
EyjanSlavoj Zizek hefur verið kallaður poppstjarna í heimi fræðanna. Þessi slóvenski heimspekingur er ekki bara feiki afkastamikill rithöfundur, djúpur og frumlegur hugsuður, heldur þykir honum einstaklega gaman að tala. Hann lætur móðan mása svo unun er að hlýða á og er jafnvígur á marga hluti, meðal þess sem ber á góma í viðtali við hann Lesa meira
